Áhrifavaldur
Áhrifavaldur er persóna sem hefur öðlast eða þróað frægð sína og vinsældir í gegnum internetið. Uppgangur samfélagsmiðla hefur gert fólki kleift að auka útbreiðslu sína til alþjóðlegra áhorfenda. Í dag er vinsæla áhrifavalda að finna á samfélagsmiðlum eins og Instagram, Twitch, YouTube, Snapchat, X, Facebook og TikTok. Vinsældir áhrifavalda eru að jafnaði metnar í fjölda fylgjenda, þ.e. einstaklinga sem fylgjast með eða horfa á efni frá viðkomandi áhrifavaldi.
Saga
breytaOrðið áhrifavaldur er ekki nýtt orð í íslensku. Elsta dæmið um orðið úr blöðum og tímaritum á stafræna safninu Tímarit.is er frá árinu 1930 og fjölgar dæmum eftir því sem líður á 20. öldina. Orðið merkir ‘sá eða það sem hefur áhrif’. Á síðasta áratug hefur orðið áhrifavaldur fengið viðbótarmerkingu í íslensku og merkir einstakling sem auglýsir vörur og þjónustu fyrirtækja á samfélagsmiðlum, oftast gegn greiðslu eða annarri umbun.[1]
Greiðslur og markaðssetning
breytaFyrirtæki kunna að eiga í samstarfi við áhrifavalda um að koma vöru sinni eða þjónustu á framfæri við fylgjendur þeirra en samfélagsmiðlar eru í auknum mæli notaðir til stafrænnar markaðssetningar. Þannig geta áhrifavaldar fengið borgað fyrir vinnu sína, en endurgreiðslur vegna samstarfs geta verið með peningum, en kunna einnig að felast í verðmætum af öðrum toga, s.s. vörum, afnotum af bifreið, góðum afsláttarkjörum eða inneign í verslun.[2]
Íslenskir áhrifavaldar
breytaMeðal þekktra íslenskra áhrifavalda má nefna eftirfarandi:
- Aron Már Ólafsson (Aron Mola)
- Bergsveinn Ólafsson (Beggi Ólafs)
- Binni Glee
- Birgitta Líf Björnsdóttir
- Edda Falak
- Frosti Logason (Harmageddon)
- Garðar Viðarsson (Gæji)
- Guðrún Veiga Guðmundsdóttir (gveiga85)
- Hjálmar Örn Jóhannsson
- Linda Benediktsdóttir (Linda Ben)
- Snorri Rafnsson (Vargurinn)
- Sólrún Diego
- Sunneva Einarsdóttir
- Tinna Björk Kristinsdóttir (TinnaBK
Tilvísanir
breyta- ↑ „Hvað getið þið sagt mér um nýyrðið áhrifavaldur?“. Vísindavefurinn. Sótt 5. júní 2022.
- ↑ „Áhrifavaldar“. Skatturinn - skattar og gjöld. Sótt 5. júní 2022.