Yfirréttur á Alþingi var frá 1593 æðsta dómstig á Íslandi, samkvæmt konungstilskipun frá 1563. Áfram var heimilt að skjóta málum til konungs og, eftir 1732 til hæstaréttar Danmerkur. Árið 1800 var landsyfirréttur stofnaður í Reykjavík og tók við hlutverki yfirréttar.

Það var hlutverk hirðstjóra og síðar amtmanns að nefna 24 menn í yfirdóm.

Tengill

breyta
   Þessi sögugrein sem tengist lögfræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.