Windows Vista
Windows Vista er útgáfa stýrikerfisins Microsoft Windows, sem er ekki lengur studd. Áður en það var kynnt þann 22. júlí 2005, var það þekkt sem Longhorn. Þann 8. nóvember 2006, var stýrikerfið tilbúið og gefið út til fyrirtækja. 30. janúar var það gefið út til almennings. Útgáfan kom fimm árum eftir þá seinustu sem gerir það lengsta bil milli tveggja útgáfna af Windows. í Windows Vista er endurskrifaður NT-kjarni. Það er notendavænt stýrikerfi og búið er að bæta öryggi þess mikið miðað við hinar útgáfurnar af Windows. Þetta stýrikerfi er mjög stórt og tekur 15 gígabæti af hörðum disk og þess vegna er gott að vera með tölvu með 40 gígabæta stóran harðan disk eða meira, 512 megabæta vinnsluminni eða meira, minnsta kosti 1 GHz örgjörva og meira en 62 megabæta skjákort. Vista inniheldur fjöldann allan af nýjum möguleikum, sumir bættu verulega notandaviðmótið, bætt leit, ný forrit eins og Windows DVD Maker og fleira. Vista eykur einnig samskipti véla í heimiliskerfinu og notar peer-to-peer tæknina sem gerir það auðveldara að deila skjölum og stafrænum hlutum milli tölva. Vista er einnig með útgáfu 3.0 af .NET Framework sem gerir forriturum auðveldara fyrir að skrifa forrit sem ekki byggja á Windows API.
Merki Windows Vista | |
Útgefandi | Microsoft |
Fjölskylda | Microsoft Windows |
Kjarni | NT 6.0.6001 |
Leyfi | EULA |
Vefsíða | Forsíða Windows Vista |
Staða verkefnis | Enginn stuðningur lengur, fyrir öryggi eða annað, þ.m.t. Internet Explorer |
Útgáfur
breytaWindows Vista fæst í sex útgáfum, Windows Vista Basic, Windows Vista Home Basic, Windows Vista Home Premium, Windows Vista Business, Windows Vista Enterprise og Windows Vista Ultimate. Allar útgáfur nema Windows Vista Basic styðja bæði 32-bit (x86) og 64-bit (x64). Arftaki stýrikerfisins, Windows 7, kom á markað seinni hluta ársins 2009.
Þjónustupakkar
breytaMicrosoft gefur út reglulega þjónustupakka fyrir stýrikerfi sín til að kynna nýja eiginleika og bæta þeim.
Þjónustupakki 1
breytaFyrsti þjónustupakkinn var gefinn út af Microsoft þann 4. febrúar 2008, fyrir Windows Vista og Windows Server 2008 á sama tíma. Hann var í prufutíma í fimm mánuði.
Í skýrslu frá Microsoft sem gefin var út í lok ágúst 2007 var talað um þrjú bætingarsvið. Þau eru: traustleiki og geta, stjórnandareynsla og stuðningur fyrir nýja staðla og vélbúnaði.