Ultra Mega Technobandið Stefán
Ultra Mega Technobandið Stefán (skammstafað UMTBS) var íslensk hljómsveit sem hefur gefið út tvær breiðskífur, og tvær smáskífur sem nefnast „Story of a Star“ og „Cockpitter“. Hljómsveitin hætti 2014.[1]
Saga
breytaHljómsveitin lenti í 2. sæti á Músíktilraunum 2006, en undanúrslitakvöldið var fyrsta skiptið sem þeir spiluðu á tónleikum. Þegar þeir lentu í 2. sæti voru meðlimir hljómsveitarinnar fimm talsins, en síðan þá hefur Ingvar Baldursson, sem spilaði á hljóðgervil, hætt í hljómsveitinni.
Frægir eru Frostrokk tónleikarnir árið 2006 þar sem UMTBS gerði allt vitlaust ásamt hljómsveitum eins og Retro Stefson, Underdrive (Í þeirri hljómsveit var Stefán Finnbogason, nú meðlimur í hljómsveitinni Sykur), Spooky Jetson (í þessari hljómsveit eru núverandi meðlimir Nolo) og The Unknown.
Eftir Músíktilraunir var þeim boðið að spila á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni árið 2006 á Pravda, þeir voru svo beðnir um að spila aftur, á lokakvöldi hátíðarinnar. Síðar fékk hljómsveitin boð um að spila á norsku tónlistarhátíðinni By:Larm.
Hljómsveitin gaf út fyrstu plötu sína árið 2008, en lag þeirra, Story Of A Star, var mikið spilað í útvarpi og seldist vel á vefnum Tonlist.is.[2]
Meðlimir
breytaNúverandi meðlimir
breyta- Sigurður Ásgeir Árnason - hljóðgervill og söngur
- Arnþór Jóhann Jónsson - hljóðgervill
- Vignir Rafn Hilmarsson - Moog
- Arnar Freyr Gunnsteinsson - bassi
- Jón Helgi Hólmgeirsson - gítar og bakraddir
- Guðni Dagur Guðnason - trommur og forritun
Fyrrverandi meðlimir
breyta- Ingvar Baldursson - hljóðgervill
Útgefið efni
breytaSmáskífur
breytaBreiðskífur
breytaTenglar
breytaHeimildir
breyta- ↑ „Hljómsveitin UMTS syngur sitt síðasta“. Fréttablaðið – gegnum tímarit.is.
- ↑ „Megas og Mínus ógna Mika“. Morgunblaðið – gegnum timarit.is.