Tindastóll (fjall)

Tindastóll er 989 metra hátt fjall innst við vestanverðan Skagafjörð, norðan við Sauðárkrók. Það er eitt þekktasta fjall héraðsins og af því er frábært útsýni í heiðskíru veðri.[1] Nafn fjallsins er oft stytt og það kallað Stóllinn, en áður mun það hafa heitið Eilífsfjall og er sagt hafa verið kennt við landnámsmanninn Eilíf örn.[2]

Tindastóll
Hæð989 metri
LandÍsland
SveitarfélagSveitarfélagið Skagafjörður
Map
Hnit65°49′35″N 19°46′35″V / 65.82646°N 19.77644°V / 65.82646; -19.77644
breyta upplýsingum

Tindastóll er langt og mikið fjall, um 20 kílómetrar á lengd. Undir fjallinu austanverðu meðfram sjónum er sveitin Reykjaströnd en vestan við fjallið er Laxárdalur. Sunnan og suðvestan við Tindastól eru Gönguskörð en nyrst gengur fjallið í sjó fram og er mjög torfært að komast þá leið milli Reykjastrandar og Laxárdals.[1]

Uppi á fjallinu er tjörn og samkvæmt alþekktri þjóðsögu fljóta óskasteinar á tjörninni á hverri Jónsmessunótt. Þangað er oft gengið um Jónsmessu og á öðrum tímum og eru margar vinsælar gönguleiðir á svæðinu.[1] Skíðaland Sauðárkróksbúa er í vestanverðum Stólnum.[3]

Heimildir

breyta
  1. 1,0 1,1 1,2 „Tindastóll - NAT ferðavísir“. 4. maí 2020. Sótt 11. júlí 2024.
  2. Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 11. júlí 2024.
  3. Iceland, North. „Sauðárkrókur-Tindastóll Ski Area“. Visit North Iceland (enska). Sótt 11. júlí 2024.