Thomas Tuchel
Thomas Tuchel er þýskur knattspyrnustjóri og fyrrum leikmaður. Hann er verðandi stjóri enska landsliðsins frá janúar 2025.
Thomas Tuchel | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Thomas Tuchel | |
Fæðingardagur | 29. ágúst 1973 | |
Fæðingarstaður | Krumbach, Þýskaland | |
Hæð | 1,9 m | |
Leikstaða | Varnarmaður | |
Yngriflokkaferill | ||
1979-1992 | TSV Krumbac FC Augsburg | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
1992-1994 | Stuttgarter Kickers | 8 (1) |
1994-1998 | SVV Ulm | 69 (2) |
Þjálfaraferill | ||
2007–2008 2009–2014 2015–2017 2017–2020 2021–2022 2023-2024 2025- |
FC Augsburg II Mainz 05 Borussia Dortmund Paris Saint-Germain Chelsea FC Bayern München England | |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Hann hefur stýrt stórum félögum eins og Bayern München, Chelsea FC og PSG.
Tuchel var sigursæll sem knattspyrnustjóri franska félagsliðsins PSG og vann 2 deildartitla og 4 bikartitla. Þrátt fyrir afar gott sigurhlutfall með PSG var hann látinn fara. En Tuchel hefur lent í ágreiningi við stjórnir knattspyrnufélaga á þjálfaraferli sínum. Hann hefur tekið við liðum Jürgen Klopp tvívegis, við Mainz 05 og Borussia Dortmund.
Tuchel spilaði sem varnarmaður en ferillinn var stuttur vegna hnémeiðsla.
Ferill
breytaChelsea
breytaThomas Tuchel tók við Chelsea í lok janúar 2021. Hann byrjaði afar vel með Chelsea og var ósigraður í fyrstu 14 leikjum sínum. Svo kom að því að hann tapaði og það illa, 2:5, fyrir botnliði WBA á heimavelli. Hann komst með liðið í úrslit FA-bikarsins og Meistaradeild Evrópu í maí sama ár. Chelsea vann Manchester City 1-0 í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Tuchel var rekinn frá félaginu í september 2022 eftir tap gegn Dynamo Zagreb í meistaradeildinni.