Taylor Swift (plata)
Taylor Swift er frumraunarplata bandarísku söngkonunnar Taylor Swift. Hún var gefin út 24. október 2006 af Big Machine Records í Bandaríkjunum og Kanada, og 18. mars 2008 alþjóðlega. Swift hafði skrifað undir hjá Sony/ATV Tree útgáfunni árið 2004 þegar hún var fjórtán ára til að sækjast eftir ferli í kántrítónlist. Samningurinn hennar við Big Machine Records gerði henni kleift að vinna í plötunni á meðan hún gekk í skóla.
Taylor Swift | ||||
---|---|---|---|---|
Breiðskífa eftir | ||||
Gefin út | 24. október 2006 | |||
Tekin upp | 2005 | |||
Hljóðver |
| |||
Stefna | Kántrí | |||
Lengd | 40:28 | |||
Útgefandi | Big Machine | |||
Stjórn |
| |||
Tímaröð – Taylor Swift | ||||
| ||||
Smáskífur af Taylor Swift | ||||
|
Lögin á plötunni fjalla um lífið hennar sem unglingur, ástarsambönd, vináttu, og óöryggi. Platan var framleidd af Robert Ellis Orral og Nathan Chapman. Taylor Swift er kántríplata með popp og popp rokk eiginleikum. Á henni má heyra órafmögnuð hljóðfæri, líkt og gítara, banjó og fiðlur.
Fimm smáskífur voru gefnar út af Taylor Swift, þar með talið „Our Song“ og „Should've Said No“ sem komust efst á Hot Country Songs vindsældalistann, og lagið „Teardrops on My Guitar“ sem komst í topp 15 á Billboard Hot 100. Swift auglýsti plötuna í gegnum Myspace sem þótti óvenjulegt á þeim tíma fyrir kántrítónlistarmann. Hún hóf sex mánaða tónlistarferðalag árið 2006 og hitaði upp á tónleikum fyrir aðra sveitasöngvara á árunum 2006 og 2007. Taylor Swift var tilnefnd sem plata ársins (Album of the Year) á Academy of Country Music-verðlaununum árið 2008.
Platan var 24 vikur á toppi Top Country Albums listans og komst í fimmta sæti á Billboard 200. Hún hefur verið viðurkennd sem sjöföld platínu plata af Recording Industry Association of America (RIAA).
Lagalisti
breytaÖll lögin voru framleidd af Nathan Chapman nema þar sem er tekið fram.
Nr. | Titill | Lagahöfundur/ar | Lengd |
---|---|---|---|
1. | „Tim McGraw“ |
| 3:54 |
2. | „Picture to Burn“ |
| 2:55 |
3. | „Teardrops on My Guitar“ |
| 3:35 |
4. | „A Place in This World“ |
| 3:22 |
5. | „Cold as You“ |
| 4:01 |
6. | „The Outside“ (
| Swift | 3:29 |
7. | „Tied Together with a Smile“ |
| 4:11 |
8. | „Stay Beautiful“ |
| 3:58 |
9. | „Should've Said No“ | Swift | 4:04 |
10. | „Mary's Song (Oh My My My)“ |
| 3:35 |
11. | „Our Song“ | Swift | 3:24 |
Samtals lengd: | 40:28 |
Nr. | Titill | Lagahöfundur/ar | Lengd |
---|---|---|---|
12. | „I Heart ?“ (Orrall) | Swift | 3:15 |
Samtals lengd: | 43:43 |
Nr. | Titill | Lagahöfundur/ar | Lengd |
---|---|---|---|
12. | „I'm Only Me When I'm with You“ (
|
| 3:35 |
13. | „Invisible“ (Orrall) |
| 3:26 |
14. | „A Perfectly Good Heart“ (
|
| 3:42 |
15. | „Taylor Swift's 1st Phone Call with Tim McGraw“ | 4:44 | |
Samtals lengd: | 55:55 |
Tilvísanir
breyta- ↑ Taylor Swift (2006). Taylor Swift (album booklet). Big Machine Records. BMR120702.
- ↑ Taylor Swift (2006). Taylor Swift (Media notes) (Best Buy exclusive. útgáfa). Big Machine Records. BMR133702ST01.
- ↑ Taylor Swift (2006). Taylor Swift (Media notes) (deluxe. útgáfa). Big Machine Records. BMR022702.
- ↑ „Taylor Swift: Taylor Swift“ (þýska). JPC. Afrit af uppruna á 2. desember 2020. Sótt 3. mars 2021.
- ↑ Taylor Swift (2008). Taylor Swift (physical album liner notes). Big Machine Records. BMR079102.
Athugasemdir
breyta- ↑ Þessi kápa var notuð á stöðluðu útgáfu og útgáfunni frá 2008. Á deluxe útgáfu frá 2007 má finna öðruvísi mynd af Swift.