Styrkt vín er vín sem þar sem vínandastyrkur hefur verið aukinn með utanaðkomandi vökva, oftast í formi koníaks. Algeng styrkt vín eru sérrí, púrtvín, vermút, marsalavín og madeiravín.

Púrtvín er dæmi um styrkt vín

Upphaflega var áfengi bætt út í léttvín til að auka líftíma þess, þar sem viðbætt áfengi áður en gerjunartímanum er lokið, drepur gerjunina og skilur þannig eftir hærra sykurinnihald. Hvort tveggja, meira áfengismagn og hærra sykurinnihald hefur svo þau áhrif að varðveita vínið betur.

Mjög margar tegundir styrktra vína eru til í heiminum, og eru þau yfirleitt drukkin sem lystauki á undan mat, eða með eftirréttinum, þar sem þau geta verið bæði mjög sæt og krydduð. Einnig eru dæmi um að slík vín séu notuð sem bragðbætir í sjálfri matargerðinni.

Gera þarf greinarmun á styrktu víni og líkjörum sem unnir eru úr víni eða vínberjahrati. Fyrri tegundin fæst með því að bæta áfengi við hefðbundið léttvín, en sú síðari með því að eima léttvín eða gambra sem gerður er úr gerjuðu hrati.

Tegundir

breyta

Púrtvín

breyta

Púrtvín er styrkt vín frá Portúgal og er það framleitt bæði rautt og hvítt. Fínni púrtvín eru geymd lengur í tunnum. Það fyrirfinnst bæði sem sætt og þurrt; þurrt borið fram með osti eða sem lystarauki og það sæta með eftirréttum eða eitt og sér.

Madeiravín

breyta

Madeiravín er einnig portúgalskt vín, frá Madeira-eyjum. Það er einasta vín sem að eðlisfari er sætt en einnig eru til aðrar gerðir. Skiptingin er; Malmsey (sætt), Boal (hálfsætt), Verdelho (hálfþurrt) og Sercial (þurrt). Madeiravín er venjulega framleitt sem blanda af ólíkum víntegundum.

Sérrí

breyta

Sérrí er spænskt vín, upphaflega frá Jerez (sem einnig er spænska heiti þess). Það er til í öllum braðflokkum en aðalflokkarnir eru Fino (þurrt), Manzanillas (mjög þurrt), Amontillado (hálfsætt/sætt), Cream (sætt).

Marsala

breyta

Marsala er ítalskt með gylltan blæ. Af því er kröftugt vínandabragð og er gjarnan notað milli rétta en einnig með bragðsterkum ostum.

Muscat

breyta

Muscat er ástralskt vín með múskatberjum.

Sake er japanskt vín gert úr hrísgrjónum sem eru látin gerjast. Vínandi verður 12–16 % við náttúrulega gerjun en í dag er einnig blandað í það brennivín til að auka vínandahlutann. Sake er gjarna borið fram heitt eða volgt.

Vermut

breyta

Vermut er styrkt vín bragðbætt með kryddi.