Straumnes (Hornströndum)

66°25.79′N 23°08.21′V / 66.42983°N 23.13683°V / 66.42983; -23.13683 Straumnes er nes norðan við Aðalvík vestan megin á Hornströndum. Á Straumnesi stendur Straumnesfjall þar sem stóð um 100 manna ratsjárstöð Bandaríkjahers frá 1953 til 1960.

Þann 30. nóvember 1916 strandaði gufuskip Eimskipafélagsins, Goðafoss, á Straumnesi. Farþegar og áhöfn björguðust eftir meira en tveggja sólarhringa vist í skipinu í ofsaveðri en skipið brotnaði í fjörunni. Skipið strandaði klukkan 3 um nótt og var hópur skipverja sendur í birtingu til Aðalvíkur eftir aðstoð. Voru þá 60 manns í skipinu. Þegar veður lægði komu vélbátar frá Aðalvík og björguðu fólkinu. Jökull Jakobsson samdi leikritið Hart í bak um það skipsstrand.

Í seinni heimsstyrjöld, 5. júlí, 1942, fórust 240 úti fyrir Straumnes þegar bandarísk og bresk skipalest lenti í tundurduflaslæðum. Annar eins fjöldi bjargaðist. [1]

Heimild

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. Mesta sjóslys íslandssögunnar Sjávarafl.is
   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.