Skaftártunguhreppur
Skaftártunguhreppur var hreppur í Vestur-Skaftafellssýslu, kenndur við sveitina Skaftártungu.
Hreppurinn varð til, ásamt Álftavershreppi, árið 1886 þegar Leiðvallarhreppi var skipt í þrennt.
Hinn 10. júní 1990 sameinaðist Skaftártunguhreppur Álftavershreppi og Leiðvallarhreppi á ný, og Kirkjubæjarhreppi og Hörgslandshreppi að auki, undir nafninu Skaftárhreppur.
Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.