Sigfús Halldórsson syngur eigin sönglög 2
Sigfús Halldórsson syngur eigin sönglög 2 er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1954. Á henni flytur Sigfús Halldórsson fjögur lög við eigin undirleik. Lögin höfðu áður komið út á 78 snúninga plötum hjá Íslenskum tónum. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið og Norska útvarpið (Játning og Við tvö og blómið). Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló. Prentun: Alþýðuprentsmiðjan. Á umslagi er platan ranglega merkt EXP-IM 6.
Sigfús Halldórsson syngur eigin sönglög 2 | |
---|---|
EXP-IM 8 | |
Flytjandi | Sigfús Halldórsson |
Gefin út | 1954 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Játning - Lag - texti: Sigfús Halldórsson -Tómas Guðmundsson - ⓘ
- Tondeleyo - Lag - texti: Sigfús Halldórsson - Tómas Guðmundsson
- Íslenskt ástarljóð - Lag - texti: Sigfús Halldórsson - Vilhjálmur frá Skáholti
- Við tvö og blómið - Lag - texti: Sigfús Halldórsson - Vilhjálmur frá Skáholti