Gullkarfi
(Endurbeint frá Sebastes marinus)
Gullkarfi (eða stóri karfi eða karfi) (fræðiheiti: Sebastes marinus) er mikilvægur nytjafiskur af ættkvísl karfa. Hann er fósturbær og fæðir þannig lifandi afkvæmi. Fiskurinn er rauður að lit, dekkri á bakinu en á kviðnum, fremur þunnvaxinn og hár.
Gullkarfi | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Gullkarfi
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Sebastes marinus Linnaeus, 1758 |
Gullkarfi lifir í Norður-Atlantshafi og Barentshafi á landgrunninu við Norður-Ameríku, Ísland, Svalbarða og Norður-Evrópu og veiðist yfirleitt á dýpi frá 100 metrum að 500 metrum. Hann verður allt að 90 cm langur, en er algengastur um 35-40 sentímetrar.
Tenglar
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Gullkarfi.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Sebastes marinus.