Reyniglæða
Reyniglæða (fræðiheiti: Polycauloina polycarpa[2]) er fléttutegund af glæðuætt. Reyniglæða tilheyrði áður ættkvísl glæða (Xanthoria). Hún var nýlega færð í ættkvíslina Polycauloina en hefur þrátt fyrir endurflokkunina haldið íslenska heiti sínu.
Reyniglæða | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Nærmynd af reyniglæðu á grein.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Polycauloina polycarpa | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Lichen polycarpus |
Reyniglæða er á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands yfir tegundir í útrýmingarhættu á Íslandi. Hún er þar metin við hættumörk (LR/nt).[1]
Útlit
breytaReyniglæða er gul eða gulgrá að ofan en þalið er hvítt eða grátt á neðra borði með brúnum rætlingum. Þalið er yfirleitt lítið um sig og þakið askhirslum í miðjunni. Askhirslurnar eru 1-3 mm í þvermál, flatar eða lítillega íhvolfar, fagurgular með ljósari eða gráleitri þalrönd.[2]
Gró reyniglæðu eru átta í aski, glær, sporbaugótt, tvíhólfa með þykkum millivegg, 11-15 µm x 6-7 µm að stærð.[2]
Búsvæði
breytaReyniglæða vex á trjábolum og er algeng á bolum gamalla trjáa við hús. Hún finnst á þremur svæðum á Íslandi: Við Faxaflóa, þar sem hún er meðal annars algeng á bolum trjáa í görðum í Reykjavík; á Austurlandi, bæði á Egilsstöðum og á Austfjörðum; og í Eyjafirði.[2]
Reyniglæta vex aðallega á reyni og birki en einnig á ösp.[2]
Efnafræði
breytaEins og aðrar tegundir af glæðuætt inniheldur reyniglæðan gula litarefnið parietín.[2]