Heiti yfir Ísland
(Endurbeint frá Nöfn Íslands)
Heiti yfir Ísland sem einkum hafa verið notuð af ljóðskáldum.
- Eykona (kv.) eyjan persónugerð, sbr. fjallkona.
- Eylenda (kvk.) - eyja, þ.e.a.s. Ísland
- Fjarst í eilífðar útsæ
- vakir eylendan þín. (Stephan G. Stephansson)
- Fjalladrottning (kvk.) - fjallkonan eða Ísland
- Fjallkonan (kvk.) með greini - fjalladrottning, persónugert tákn Íslands
- Frón (hk.) Ísland.
- Heima á Fróni. [1] Íslendingar oft nefndir Frónbúar.
- Garðarshólmi (kk.) Ísland, eftir Garðari Svavarssyni
- Hrímey (kvk.)
- Hrímgrund (kvk.)
- Hrímland (hk.) (bókin Crymogaea er stundum nefnd „Hrímland”)[2]
- Ísafold (hk.)
- Ísaland (hk.)
- ...og flykkjast heim að fögru landi ísa. (sbr.)
- Jökulmær (kvk.) Fjallkonan, Ísland.
- Norðurey (kvk.) Í skopskyni er ýmist talað um að Norðurey sé stærsta (eða nyrsta) eyjan í Vestmannaeyjaklasanum.
- Snjóland (hk.) Ísland.
- Snæland (hk.) (latína: Snelandia) er það nafn sem Naddoður víkingur er sagður hafa gefið Íslandi á 9. öld
- Thule (hk.) Sumir fræðimenn telja Ísland vera Thule, er Pýþeas fann um 300 f.Kr., en sumir telja það ólíklegt. Pýþeas (frá Massalíu) segir að Týli sé lengst í norðri, bætir hann þessu við til að skýra nákvæmar legu og breidd eyjarinnar
- Parois ontos dsi tw apcticw o derinos tropikos cuclo.
- Þýtt: Þar er hvarfbaugur ígildi heimskautsbaugs.
- Parois ontos dsi tw apcticw o derinos tropikos cuclo.
- Týli (hk.) Thule
- Þyli (hk.) Thule
Háðsyrði um Ísland
breytaÍsland hefur einnig verið kallað í hálfkæringi:
- hólminn - Tómas Sæmundsson segir þegar hann er að hvetja Jónas Hallgrímsson að koma til Kaupmannahafnar: Þú ert sá, sem bezt er lagaður til að gera það svo, að hólminn okkar geti haft sóma af. [3]
- klakinn - dæmi: Þegar ég kem upp á klakann þá hittumst við.
- skerið - dæmi: Þú verður nú að koma upp á skerið einhverntíma.
Latnesk heiti Íslands
breyta- Hislant terra - Hin víðförla Guðríður Þorbjarnardóttir gekk til Rómaborgar. Í gestabók klaustursins í Reichenau, þar sem skráð eru nöfn allra pílagríma sem þar komu við á 9., 10. og 11. öld, er að finna 39 nöfn karla og kvenna sem sögð eru vera frá Hislant terra (Íslandi). Hún er þar nefnd Gurid.
- Insula Gardari - þýðing á Garðarshólma, orðrétt: eyja Garðars.
- Islandia - ummyndun á Íslandi.
- Snelandia - ummyndun á Snæland
Eitt og annað
breyta- Trekt Helvítis - Í Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness segir svo frá og eru danskir menn að tala um Ísland: „Töldu þeir [ónefndir Danir] að utaná þessari trekt Helvítis skrældist lúsugur þrælalýður áfram á grút og úldnum hákalli ásamt ölmusu frá kónginum“. [4]
Tilvísanir
breyta- ↑ Hvaðan kemur orðið Frón (eins og í Ísland farsældar Frón)?; af Vísindavefnum[óvirkur tengill]
- ↑ http://www.forsaetisraduneyti.is/radherra/raedurGHH/nr/2343
- ↑ Lesbók Morgunblaðsins 1945
- ↑ Halldór Laxness, Íslandsklukkan; 15. kafli í frysta hluta (Íslandsklukkunni).