Mosvallahreppur
Mosvallahreppur var hreppur í Önundarfirði í Vestur-Ísafjarðarsýslu, kenndur við bæinn Mosvelli.
Árið 1922 var hreppnum skipt í tvennt, sunnan fjarðar hét áfram Mosvallahreppur, en norðan hans Flateyrarhreppur. Hinn 1. júní 1996 sameinuðust Mosvallahreppur og Flateyrarhreppur á ný auk fjögurra annarra sveitarfélaga: Ísafjarðarkaupstaðar, Mýrahrepps, Suðureyrarhrepps og Þingeyrarhrepps, undir nafninu Ísafjarðarbær.
Jarðir í Mosvallahreppi árið 1858:
- Mosdalur
- Kirkjuból í Valþjófsdal
- Dalshús
- Túnga
- Grafargil
- Þorfinnstaðir
- Hjarðardalur ytri
- Hjarðardalur innri
- Þórustaðir
- Holt í Önundarfirði
- Vaðlar
- Tröð
- Kirkjuból í Bjarnadal
- Mosvellir
- Vífilsmýrar
- Hóll í Firði
- Túnga í Firði
- Hafurshestur
- Hesthús efri
- Hesthús neðri
- Efstaból
- Kroppstaðir
- Kirkjuból í Korpudal
- Kirkjubólshús
- Tannanes
- Veðrará innri
- Veðrará ytri
- Breiðadalur fremri
- Breiðadalur neðri
- Selakirkjuból
- Kaldá
- Hóll á Hvylftarströnd
- Garðar
- Hvylft
- Eyri
Heimild
breyta Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.