Michelle O'Neill
Michelle O'Neill (f. Doris; 10. janúar 1977) er írsk stjórnmálakona sem hefur verið fyrsti ráðherra Norður-Írlands frá árinu 2024. O'Neill er varaforseti írska lýðveldisflokksins Sinn Féin, sem aðhyllist aðskilnað Norður-Írlands frá Bretlandi og sameiningu við Írska lýðveldið. Hún er fyrsti lýðveldissinninn sem hefur gegnt embætti fyrsta ráðherra Norður-Írlands.
Michelle O'Neill | |
---|---|
Fyrsti ráðherra Norður-Írlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 3. febrúar 2024 | |
Forveri | Paul Givan |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 10. janúar 1977 Fermoy, County Cork, Írlandi |
Þjóðerni | Írsk |
Stjórnmálaflokkur | Sinn Féin |
Maki | Paddy O'Neill (g. 1995; sk. 2014) |
Börn | 2 |
Æviágrip
breytaSinn Féin undir forystu Michelle O'Neill vann sögulegan sigur í þingkosningum Norður-Írlands árið 2022. Flokkurinn hlaut 27 af 90 þingsætum og varð stærsti flokkurinn á norður-írska þinginu. Þetta var í fyrsta sinn sem lýðveldissinnaður flokkur varð stærstur á þinginu.[1]
Norður-írska þingið var óvirkt í nærri tvö ár eftir kosningarnar þar sem Lýðræðislegi sambandsflokkurinn (DUP), stærsti flokkur breskra sambandssinna á Norður-Írlandi, sniðgekk þingið til að mótmæla verslunarmálum sem tengdust Brexit-fyrirkomulagi bresku ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt samningi föstudagsins langa frá 1998 þurfa lýðveldissinnar og sambandssinnar að mynda ríkisstjórn Norður-Írlands saman.[2]
Sinn Féin og DUP komu sér loks saman um myndun nýrrar stjórnar í febrúar 2024. Samkvæmt stjórnarsáttmála þeirra varð Michelle O'Neill fyrsti ráðherra Norður-Írlands en Emma Little-Pengelly úr DUP varð varaforsætisráðherra. Samkvæmt samningi föstudagsins langa eru fyrsti ráðherra og varaforsætisráðherra jafnvaldamikilir í ríkisstjórninni. O'Neill tók við embætti þann 3. febrúar 2024.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ Erla María Markúsdóttir (15. maí 2022). „Nýtt valdajafnvægi á Norður-Írlandi – Sögulegur kosningasigur en snúin staða“. Kjarninn. Sótt 3. febrúar 2024.
- ↑ Magnús Jochum Pálsson (3. febrúar 2024). „Írskur þjóðernissinni forsætisráðherra Norður-Írlands í fyrsta sinn“. Vísir. Sótt 3. febrúar 2024.
- ↑ „Fyrsti forsætisráðherrann úr Sinn Féin“. mbl.is. 3. febrúar 2024. Sótt 3. febrúar 2024.
Fyrirrennari: Paul Givan |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |