Birkidumba
(Endurbeint frá Melanohalea exasperata)
Birkidumba[1] (fræðiheiti: Melanohalea exasperata) eða birkiskóf[2] er ólífugræn eða brún flétta af litskófarætt. Hún vex á berki birkitrjáa og er ein algengasta fléttan í íslenskum birkiskógum.[1] Auk þess að vaxa á birki vex hún líka á reyni og fleiri trjátegundum.[2]
Birkidumba | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ekki metið
(IUCN)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Melanohalea exasperata |
Þrátt fyrir algengi birkidumbu í íslenskum birkiskógum er hún sjaldgæf í birkiskógum í Skandinavíu þar sem fléttan snælínudumba er algeng en sú er sjaldgæf á Íslandi.[3] Ekki er talið að birkidumba valdi tré skaða með því að vaxa á því.[4]
Efnafræði
breytaBirkidumba inniheldur engin þekkt fléttuefni. Þalsvörun hennar er neikvæð við K, C, KC og P.[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 Hörður Kristinsson. Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8
- ↑ 2,0 2,1 Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
- ↑ Hörður Kristinsson (1998). Fléttur á íslenskum trjám. Skógræktarritið 1998(1), 35-47.
- ↑ Sigurður Blöndal (2000). Reyniviður (Sorbus aucuparia L.) á Íslandi. Skógræktarritið 2000(1), 17-46.