Möttulstrókurinn undir Íslandi
Möttulstrókurinn undir Íslandi er einn af öflugustu möttulstrókum jarðarinnar. Talið er að miðja stróksinns sé núna undir norðvesturhluta Vatnajökuls (Grímsvötn, Bárðarbunga). Talið er að Ísland hafi orðið til vegna þessa möttulstróks. Á síðustu árþúsundum hefur komið hér upp stór hluti þeirrar kviku sem öll eldgos á jörðinni framleiddu ofan sjávar.
Áætlað er að möttulstrókurinn sé um 200 km í þvermál sem sennilega nær að mörkum möttuls og kjarna á um 2900 km dýpi. Efnið í honum er um 300 °C heitara en efnið umhverfis.
Tenglar
breyta- „Er heitur reitur undir Íslandi?“. Vísindavefurinn.
- „Er eldvirkni á Íslandi sveiflukennd?“. Vísindavefurinn.
- „Hvað gerist ef möttulstrókurinn undir Íslandi hættir að virka?“. Vísindavefurinn.
- Richard Allen's Iceland page, UC Berkeley
- Geology and geodynamics of Iceland, by Reidar G. Trønnes, Institute of Earth Sciences, Reykjavík (PDF) Geymt 3 mars 2016 í Wayback Machine
- Jun Korenaga: Origin of the Iceland hotspot and the North Atlantic Igneous Province. Mantle Plumes Org. (2004)
Þessi jarðfræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.