Leikbræður syngja
Leikbræður syngja er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1959. Á henni flytja Leikbræður fjögur lög við undirleik Carl Billich. Leikbræður voru þeir Gunnar Einarsson, Ástvaldur Magnússon, Torfi Magnússon og Friðjón Þórðarson. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Ljósmynd: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló. Prentun: ÞEGG.
Leikbræður syngja | |
---|---|
EXP-IM 63 | |
Flytjandi | Leikbræður, Carl Billich |
Gefin út | 1959 |
Stefna | Sönglög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Linditréð - Lag - texti: Schubert - Þórður Kristleifsson
- Hanna litla - Lag - texti: Gylfi Þ. Gíslason - Tómas Guðmundsson ⓘ
- Draumadísin mín - Lag - texti: Grothe - Jón Sigurðsson
- Litla skáld - Lag - texti: Gunnar Sigurgeirsson - Þorsteinn Erlingsson