Laugaskarð
Forn víggirt leið í Mið-Grikklandi
(Endurbeint frá Laugaskörð)
Laugaskarð eða Laugahlið, stundum nefnt í fleirtölu Laugaskörð (grísku: Θερμοπυλαι (Þermopýlæ)) var til forna mjó landræma milli fjalls og sjávar í austurhluta Mið-Grikklands.
Þar varðist fámennt lið Grikkja, undir forystu hins spartverska Leonídasar, gegn miklum her Xerxesar Persakonungs til síðasta manns í orrustu sem nefnd hefur verið Orrustan við Laugaskarð árið 480 f.Kr. Þar sem þeir börðust var síðan reist súla með kvæði eftir Símonídes frá Keos og er þannig á grísku:
- Ὦ ξεῖν’, ἀγγέλλειν Λακεδαιμονίοις ὅτι τῇδε
- κείμεθα, τοῖς κείνων ῥήμασι πειθόμενοι.
- Ō xein', angellein Lakedaimoniois hoti tēide
- keimeþa tois keinōn hrēmasi peiþomenoi.
Þýtt þannig:
- Ferðamaður! segðu Spartverjum, að vér hvílum hér,
- af því vér hlýddum lögum þeirra.
Sem Steingrímur Thorsteinsson þýðir svo:
- Vegfari, ber frá oss boð og borglýðnum seg það í Spörtu,
- fallnir að hvílum vér hér, hlýðnir við ættjarðarlög
Og sem Helgi Hálfdanarson þýðir svo:
- Hverf þú til Spörtu heim; þar skaltu segja,
- að hlýðnir lögum kusum vér að deyja.
Og sem Stefán Steinsson þýðir þannig:
- Gestur, láttu Lakverja vita að hér hvíli hermenn sem gerðu það sem fyrir þá var lagt.