Kunming Changshui-alþjóðaflugvöllurinn
Kunming Changshui alþjóðaflugvöllurinn (IATA: KMG, ICAO: ZPPP) (kínverska: 昆明长水国际机场; rómönskun: Kūnmíng cháng shuǐ guójì jīchǎng) er meginflughöfn Yunnan héraðs í suðvesturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Hann er einn fjölfarnasti flugvöllur Kína.
Flugvöllurinn er staðsettur 24,5 km norðaustur af miðbænum á við fjallasvæði um 2.100 metra yfir sjávarmáli. Hann var vígður árið 2012 í stað gamla Kunming Wujiaba alþjóðaflugvallarins sem var rifinn.
Kunming Changshui völlurinn þjónar sem hlið að Suðaustur- og Suður-Asíu og er (ásamt Urumqi Diwopu flugvellinum) annar af tveimur innlendum safnflugvöllum Kína.
Hann er safnvöllur China Eastern Airlines, Kunming Airlines (heimafélagið í Yunnan), Lucky Air, Sichuan Airlines og Ruili Airlines. Alls eru 46 farþegaflugfélög starfandi á flugvellinum. Að auki eru farmflugfélög starfandi á vellinum (cargo).
Flugvöllurinn hefur tvær flugbrautir og um hann fóru 48 milljónir flugfarþega árið 2019. Það gerir hann að einum fjölfarnasta flugvelli heims.
Tenglar
breyta- Vefsíða alþjóðaflugvallarins Kunming Changshui Geymt 13 febrúar 2018 í Wayback Machine.
- Vefsíða um Kunming Changshui alþjóðaflugvöllinn]. Almennar upplýsingar, um flugvöllinn, flugfélög, komur og brottfarir, samgöngur frá flugvellinum og fleira.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Kunming Changshui International Airport“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 22. janúar 2021.