Konungur Sádi-Arabíu
(Endurbeint frá Konungur Sádí-Arabíu)
Konungur Sádi-Arabíu er einvaldur í Sádi-Arabíu. Hann er bæði þjóðhöfðingi og stjórnarleiðtogi landsins. Hann er auk þess höfuð Sád-ættar. Konungurinn er ávarpaður sem „verndari mosknanna tveggja“ sem vísar til mosknanna Masjid al Haram í Mekka og Al-Masjid an-Nabawi í Medina.
Fyrsti konungur Sádi-Arabíu var Ibn Sád sem endurheimti emírsdæmi fjölskyldunnar í Ríad árið 1902. Hann lagði í kjölfarið héruðin Nejd og Hejaz undir sig. Árið 1921 lýsti hann yfir stofnun soldánsdæmisins Nejd. Árið 1926 var hann hylltur sem konungur Hejaz og gerði Nejd einnig að konungsdæmi skömmu síðar. Árið 1932 voru þessi tvö ríki sameinuð sem konungsríkið Sádi-Arabía.
Konungar Sádi-Arabíu
breytaNafn | Fæðingar-/dánardagur | Tók við embætti | Lét af embætti | Athugasemdir | Ætt | Mynd |
---|---|---|---|---|---|---|
Ibn Sád عبد العزيز |
15. janúar 1875 – 9. nóvember 1953 (78 ára) |
22. september 1932 (57 ára) | 9. nóvember 1953 (lést) |
Stofnaði ríki með landvinningum | Sád | |
Sád سعود |
12. janúar 1902 – 23. febrúar 1969 (67 ára) |
9. nóvember 1953 (51 árs) | 2. nóvember 1964 (steypt af stóli) |
Sonur Ibn Sád og Wadhah bint Muhammad bin 'Aqab | Sád | |
Feisal فيصل |
14. apríl 1906 – 25. mars 1975 (68 ára) |
2. nóvember 1964 (57 ára) | 25. mars 1975 (myrtur) |
Sonur Ibn Sád og Tarfa bint Abduallah bin Abdulateef al Sheekh | Sád | |
Khalid خالد |
13. febrúar 1913– 13. júní 1982 (69 ára) |
25. mars 1975 (62 ára) | 13. júní 1982 (lést) |
Sonur Ibn Sád og Al Jawhara bint Musaed bin Jiluwi | Sád | |
Fahd فهد |
16. mars 1921 – 1. ágúst 2005 (84 ára) |
13. júní 1982 (61 árs) | 1. ágúst 2005 (lést) |
Sonur Ibn Sád og Hussa bint Ahmed Al Sudairi | Sád | |
Abdúlla عبد الله |
8. janúar 1924– 23. janúar 2015 (90 ára) |
1. ágúst 2005 (81 árs) | 23. janúar 2015 (lést) |
Sonur Ibn Sád og Fahda bint Asi Al Shuraim | Sád | |
Salman سلمان |
31. desember 1935 | 23. janúar 2015 (79 ára) | Í embætti | Sonur Ibn Sád og Hussa bint Ahmed Al Sudairi | Sád |