Kolbeinn Sigþórsson
Kolbeinn Sigþórsson (f. 14. mars 1990) er íslenskur knattspyrnumaður.
Kolbeinn Sigþórsson | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Kolbeinn Sigþórsson | |
Fæðingardagur | 14. mars 1990 | |
Fæðingarstaður | Reykjavík, Ísland | |
Hæð | 1,86 m | |
Leikstaða | Sóknarmaður | |
Yngriflokkaferill | ||
1996-2006 2006-2007 2007-2010 |
Víkingur HK AZ Alkmaar | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2006 | HK | 5 (1) |
2010-2011 | AZ Alkmaar | 32 (15) |
2011-2015 | Ajax | 80 (31) |
2015-2019 | Nantes FC | 30 (3) |
2019-2020 | AIK | 32 (3) |
2021 | IFK Göteborg | 17 (4) |
Landsliðsferill2 | ||
2006-2007 2009 2007-2011 2010-2021 |
Ísland U17 Ísland U19 Ísland U21 Ísland |
12 (7) 2 (0) 16 (4) 62 (26) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Ferill
breytaFélagslið
breytaKolbeinn hóf ferilinn hjá Víkingi og spilaði einnig með HK. Síðar fór hann til Hollands og spilaði með AZ Alkmaar og Ajax. Árið 2015 fór hann til franska liðsins FC Nantes. Eftir meiðsli og ósætti við stjórn liðsins fór Kolbeinn frá félaginu. Hann gerði samning við AIK vorið 2019. [1] Tveimur árum síðar hélt hann til Gautaborgar. Hann skoraði tvennu í öðrum leik sínum fyrir IFK Gautaborg.
Landslið
breytaKolbeinn er hæsti markaskorari landsliðsins frá upphafi ásamt Eiði Smára Guðjohnsen með 26 mörk. Hann skoraði 2 mörk á EM í Frakklandi árið 2016. Kolbeinn meiddist á hné í september 2016. Meiðslin voru þrálát og bati hægur. Hann spilaði með varaliði Nantes í byrjun árs 2018 og æfði með landsliði Íslands. Kolbeinn skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í rúm 2 ár á móti Katar í nóvember 2018.
Ofbeldismál
breytaÍ september 2021 kom upp á yfirborðið mál þar sem Kolbeinn var sakaður um ofbeldi á skemmtistað árið 2017, að hafa gripið um klof konu og haldið henni hálstaki. Fjölskylda konunnar sem varð fyrir því setti sig í samband við KSÍ og úr varð að Kolbeinn greiddi bætur. Fjórum árum síðar þegar málið komst í hámæli vildi Kolbeinn ekki kannast við að hafa beitt ofbeldi.
Hann var tekinn úr landsliðinu og úr liði IFK Gautaborgar í kjölfarið.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Kolbeinn Sigþórsson skrifar undir hjá AIK Rúv, skoðað 31. mars, 2019.
- ↑ Ég hef aldrei verið jafn hrædd um líf mitt Vísir.is, sótt 16/9 2021