Knattspyrnusamband Eyjaálfu

Knattspyrnusamband Eyjaálfu (skammstöfun: OFC) er yfirumsjónaraðili Knattspyrnu í Eyjaálfu. Aðildarfélög sambandsins eru Papúa Nýja-Gínea, Nýja Sjáland og eyríki á borð við Tonga og Fídjieyjar.

SkammstöfunOFC
EinkennisorðAn ocean of solidarity
Stofnun15. nóvember 1966 (1966-11-15) (58 ára)
GerðÍþróttasamtök
HöfuðstöðvarFáni Nýja Sjálands Auckland, Nýja Sjáland
MarkaðsvæðiEyjaálfa
ForstöðumaðurDavid Chung
MóðurfélagAlþjóðaknattspyrnusambandið
Vefsíðaoceaniafootball.com

Af sex aðildarfélögum FIFA er OFC það minnsta og fótbolti er ekki á meðal vinsælustu íþrótta ríkjanna. Eftir brotthvarf Ástralíu í Knattspyrnusamband Asíu varð Nýja Sjáland stærsta aðildarfélag sambandsins. Brotthvarfið gerði einnig það að verkum að eina atvinnudeild sambandsins hvarf.

Sambandið var stofnað 1966. Stofnfélagar voru knattspyrnusambönd Ástralíu, Nýja Sjálands og Filippseyja. Sama ár var sambandið staðfest af FIFA sem fullgildur meðlimur og fékk sæti í stjórn FIFA. Í maí 2004 varð Nýja-Kaledónía tólfti meðlimur sambandsins. 1. janúar 2006 varð Ástralía meðlimur knattspyrnusambands Asíu og á næstu árum sóttu Norður-Marínaeyjar og Palá um sem áheyrnarfulltrúar knattspyrnusambands Asíu.

Heimildir

breyta

Fyrirmynd greinarinnar var „Oceania Football Confederation“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 24. júní 2011.

   Þessi knattspyrnugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.