Karþagó
Karþagó (úr fönísku: QRT HDŠT, með sérhljóðum: Qart-Hadasht, „Nýjaborg“) var borg í Norður-Afríku austan megin við Túnisvatn beint á móti borginni Túnis. Hún var stofnuð um 814 f.Kr. af Föníkum (Púnverjum) en íbúar Karþagó eru einmitt nefndir Púnverjar.
Borgin varð miðstöð verslunar við Miðjarðarhafið á 6. öld f.Kr. og lenti því á móti fyrst Forngrikkjum í Sikileyjarstríðunum á 5. og 4. öld f.Kr. og síðan Rómverjum í púnversku stríðunum á 3. og 2. öld f.Kr. Þriðja púnverska stríðið endaði með því að borgin beið algeran ósigur og Rómverjar lögðu hana í rúst. Á síðari hluta 2. aldar e.Kr. óx hún sem höfuðstaður rómverska skattlandsins Afríku. Borgin varð síðan hluti af veldi Býsans þar til hún féll fyrir arabískum innrásarherjum undir lok 7. aldar.
Tenglar
breyta- „Hvers galztu Karþagó, sem áttir eitt sinn hvíta, vaska syni?“; grein í Sunnudagsblaðinu 1959
- „Það á ekki að leggja Karþagó í rústir“; grein í Heimilistímanum 1974
- „Sjóveldi Púnverja“; grein í Sjómannablaðinu Víkingi 1945