Ýmsir - Jólin hennar ömmu

(Endurbeint frá Jólin hennar ömmu)

Jólin hennar ömmu er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1969. Á henni flytja ýmsir efni tengt jólum. Útsetningar, píanóleikur, kór- og hljómsveitarstjórn var Magnús Pétursson. Hljóðfæraleikarar: Sigurður Ísólfsson á orgel, Karl Lilliendahl á gítar og Árni Scheving á bassa. Hljóðritun samtals ömmu og barnanna fór fram í Ríkisútvarpinu. Hljóðritun sálmasöngs í Fríkirkjunni í Reykjavík. En hljóðritun heimsóknar jólasveinsins í veitingahúsi í Reykjavík fyrir fáum árum. Hljóðritun meginefnis annaðist Pétur Steingrímsson. Teikningu á framhlið gerði Halldór Pétursson, en ljósmynd á bakhlið tók Óli Páll Kristjánsson. Efnið er sett saman í leikritsform af Svavari Gests,

Jólin hennar ömmu
Bakhlið
SG - 024
FlytjandiÝmsir
Gefin út1969
ÚtgefandiSG - hljómplötur
StjórnPétur Steingrímsson
  1. Jólakvœði eftir Jóhannes úr Kötlum.
  2. Jólasálmar, barnasálmar, jólalög.
  3. jólaguðspjallið.
  4. Heimsókn jólasveins á jólatrésskemmtun.

Flytjendur

breyta

Hljóðdæmi

breyta

Hljóðdæmi

Textabrot af bakhlið plötuumslags

breyta
 
Hópur barna kemur í heimsókn til ömmu um jólin og gerist þar margt skemmtilegt, því það er ekki aðeins að börnin syngja fyrir ömmu skemmtileg jólalög, heldur líka barnasálma og jólasálmana og þar kemur reyndar pabbi við sögu, því hann syngur jólasálmana með börnunum. Amma segir börnunum hins vegar frá jólunum í gamla daga og er fléttað inn í frásögn hennar hinum góðkunnu kvœðum Jóhannesar úr Kötlum um Jólasveinana, Jólaköttinn að ógleymdum Grýlu og Leppalúða. Og einnig fer amma með Jólaguðspjallið fyrir börnin í söguformi, sem á að gera það öllum börnum skiljanlegt. Þá kemur jólasveinn við sögu, því börnin rifja upp fyrir ömmu heimsókn jólasveins á jólatrésskemmtun, sem þau voru á og er þar um einstœða hljóðritun að rœða, sem gerð var fyrir nokkrum árum, þegar Ólafur Magnússon frá Mosfelli hreyf œsku Reykjavíkur í gervi Kertasníkis.