World Sailing
World Sailing er æðsta yfirvald í siglingaíþróttum, einkum keppnum á kænum, kjölbátum, seglbrettum og keppnum með fjarstýrðum seglbátum. Aðilar að sambandinu eru siglingasambönd hinna ýmsu landa. Sambandið var stofnað af Royal Yachting Association í Bretlandi og Yacht Club de France í Frakklandi árið 1907 og hét þá Alþjóða kappsiglingasambandið (International Yacht Racing Union). Árið 1996 breytti sambandið heiti sínu í Alþjóðasiglingasambandið (International Sailing Federation, skammstafað ISAF) og 2015 var nafninu breytt í „World Sailing“. Sambandið stendur fyrir alþjóðlegum mótum í siglingum á Sumarólympíuleikunum og heldur Heimsmeistaramót Alþjóða siglingasambandsins á fjögurra ára fresti (það fyrsta árið 2003). Það heldur utan um styrkleikalista siglingafólks og gefur út Alþjóðlegu kappsiglingareglurnar á fjögurra ára fresti.
Siglingasamband Íslands er aðili að World Sailing sem landssamband siglingafélaga á Íslandi.
Alþjóðleg mót
breytaÓlympíuleikarnir í siglingum
breytaWorld Sailing ber ábyrgð á keppnum í siglingum á Sumarólympíuleikunum sem eru haldnir á fjögurra ára fresti. Siglingar hafa verið ólympíugrein samfellt frá 1896 ef undan eru skildir Ólympíuleikarnir í St. Louis árið 1904.
Í tengslum við Ólympíuleikana heldur World Sailing heimsmeistaramót í ólympíuflokkunum á fjögurra ára fresti og Heimsbikarkeppnina í siglingum árlega.
Ólympíumót fatlaðra
breytaKeppt hefur verið í siglingum á Sumarólympíuleikum fatlaðra frá 1996. Árið 2016 var keppt í þremur flokkum. Árið 2014 gekk alþjóðasamband í siglingum fatlaðra inn í World Sailing sem nefnd um siglingar fatlaðra.
Heimsmeistaramót í siglingum
breytaHeimsmeistaramót í siglingum eru haldin í yfir 100 flokkum viðurkenndra keppnisgerða báta, oftast í flotakeppni en stundum í bæði flotakeppni og liðakeppni. Þessar keppnir eru haldnar af samböndum viðkomandi bátsgerða en eru samþykktar af World Sailing sem opinberar heimsmeistarakeppnir. Þær fara fram á 4 ára fresti.
Mót á vegum World Sailing
breyta- Heimsmeistaramótið í siglingum í ólympíuflokkum.
- Heimsbikarkeppnin í siglingum
- Heimsmeistaramót ungs fólks í siglingum
- Heimsmeistaramót í siglingum liða
- Heimsmeistaramót í úthafssiglingum liða
- Heimsmeistaramót í tvíliðakeppni kvenna í siglingum
- Opna heimsmeistaramótið í tvíliðakeppni í siglingum
- Þjóðabikarinn
- Heimsmeistarakeppni í siglingum kvenna (frá 1978 til 1992)
Sérsambönd sem World Sailing viðurkennir
breytaSérstakir tengdir viðburðir
breytaViðurkenningar
breytaÁ hverju ári útnefnir World Sailing Heimssiglara ársins í karla- og kvennaflokki.
Í Frægðarhöll World Sailing voru árið 2016 13 siglingamenn:
- Olin Stephens (Bandaríkin)
- Ellen MacArthur (Bretland)
- Paul Elvstrøm (Danmörk)
- Barbara Kendall (Nýja-Sjáland)
- Eric Tabarly (Frakkland)
- Robin Knox-Johnston (Bretland)
- Dennis Conner (Bandaríkin)
- Alessandra Sensini (Ítalía)
- Harold Vanderbilt (Bandaríkin)
- Peter Blake (Nýja-Sjáland)
- Buddy Melges (Bandaríkin)
- Valentin Mankin (Rússland)
- Torben Grael (Brasilía)
Beppe Croce-verðlaunin eru veitt einum siglingamanni árlega sem þykir hafa lagt mikið af mörkum til íþróttarinnar.
Forsetar
breytaFrá 1907 til 1946 voru forsetar kjörnir á hverjum fundi sambandsins.
- 1946–1955: Sir Ralph Gore (Bretlandi)
- 1955–1969: Sir Peter Scott (Bretlandi)
- 1969–1986: Beppe Croce (Ítalíu)
- 1986–1994: Peter Tallberg (Finnlandi)
- 1994–2004: Paul Henderson (Kanada)
- 2004–2012: Göran Petersson (Svíþjóð)
- 2012–2016: Carlo Croce (Ítalíu)
- 2016–: Kim Andersen (Danmörku)