Sigurður Ólafsson - Meira fjör

(Endurbeint frá IM 14)

Sigurður Ólafsson syngur Meira fjör er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1953. Á henni syngur Sigurður Ólafsson lögin Meira fjör og Kom þú þjónn. Hljómsveitarstjóri er Bjarni Böðvarsson og aðrir í hljómsveit eru Sveinn Ólafsson, Þorvaldur Steingrímsson, Óskar Cortes, Jónas Dagbjartsson og Einar B. Waage. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.

Sigurður Ólafsson syngur Meira fjör
Bakhlið
IM 14
FlytjandiSigurður Ólafsson, hljómsveit Bjarna Böðvarssonar
Gefin út1953
StefnaSönglög
ÚtgefandiÍslenzkir tónar

Lagalisti

breyta
  1. Meira fjör - Lag - texti: Bjarni Böðvarsson - Jón Sigurðsson - Hljóðdæmi
  2. Kom þú þjónn - Lag - texti: Weinberger - Lárus Jónsson