Soffía Karlsdóttir - Bílavísur og Réttarsamba
(Endurbeint frá IM 10)
Soffía Karlsdóttir - Bílavísur og Réttarsamba er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1953. Á henni syngja Soffía Karlsdóttir og Tígulkvartettinn tvö vinsæl lög með kvintett Jan Morávek. Kvintettinn skipa auk Jan, þeir Árni Ísleifs, Eyþór Þorláksson, Pétur Urbancic og Þorsteinn Eiríksson. Tígulkvartettinn skipa þeir Guðmundur H. Jónsson, Hákon Oddgeirsson, Brynjólfur Ingólfsson og Gísli Símonarson. Útsetning: Jan Morávek. Pressun: AS Nera í Osló
Soffía Karlsdóttir - Bílavísur og Réttarsamba | |
---|---|
IM 10 | |
Flytjandi | Soffía Karlsdóttir, Tígulkvartettinn, kvintett Jan Morávek |
Gefin út | 1953 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Bílavísur (Blacksmith blues) - Lag - texti: Holmes - Jón Sigurðsson - ⓘ
- Réttarsamba - Lag - texti: Gunnar Guðjónsson - Loftur Guðmundsson
Nóturnar
breyta-
Drangeyjarútgáfan gaf út nótur með lögunum vinsælu.
-
Texti Lofts Guðmundssonar við lagið Réttarsamba (síða úr nótnaheftinu).