Hreindýr jólasveinsins (Bandaríkin)
Hreindýr draga með töfrum sleða bandaríska jólasveinsins samkvæmt þjóðsögum þar í landi svo hann getur flogið. Hefð er fyrir því að hreindýrin séu níu talsins. Í kvæði frá 1823 A Visit from St. Nicholas (betur þekkt sem The Night Before Christmas) eftir bandaríska skáldið Clement C. Moore eru hreindýrin átta talsins, en á millistríðsárunum bættist Rúdolph, rauðnefjaða hreindýrið í flokkinn og hafa hreindýrin verið níu talsins síðan þá.
Nöfn hreindýranna
breyta- Dasher
- Dancer
- Prancer
- Vixen
- Comet
- Cupid
- Donner
- Blitzen
- Rudolph
Uppruni sögunnar
breytaNöfn fyrstu átta hreindýranna eru úr kvæði frá árinu 1823. Níunda hreindýrið, Rúdolph, á rætur að rekja til auglýsingaherferðar sem samin var fyrir Montgomery Ward vöruhúsakeðjuna árið 1939. Vöruhúsakeðjan lét semja teiknibók um ævintýrið um Rúdolph. Bókinni var dreift til barna í verslunum þeirra fyrir jólin. Árið 1948 samdi Johnny Marks jólalag um Rúdolph sem hefur öðru fremur borið hróður hinna fljúgandi hreindýra. Fyrsta hljóðritun lagsins er frá 1949 í flutningi Gene Autry.
Sagan af Rúdolph og hreindýrunum fljúgandi er ein vinsælasta jólasaga samtímans, sérstaklega í hinum engilsaxneska heimi.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Santa Claus's reindeer“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. desember 2010.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Clement Clarke Moore“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. desember 2010.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Rudolph the Red-Nosed Reindeer“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. desember 2010.