Hobbitinn
bók frá 1937 eftir J.R.R. Tolkien
Hobbitinn : eða út og heim aftur (enska: The Hobbit, or There and Back Again) er ævintýraskáldsaga eftir breska rithöfundinn J.R.R. Tolkien sem fjallar um leiðangur hobbitans Bilbó Bagga með þrettán dvergum og vitkanum Gandalfi til Fjallsins eina þar sem þeir ætla sér að endurheimta fjársjóð úr höndum dreka að nafni Smeyginn.
Höfundur | J. R. R. Tolkien |
---|---|
Upprunalegur titill | The Hobbit, or There and Back Again |
Þýðandi | Þorsteinn Thorarensen Úlfur Ragnarsson og Karl Ágúst Úlfsson (1978) |
Hönnuður kápu | J. R. R. Tolkien |
Land | Bretland |
Tungumál | Enska |
Útgefandi | George Allen & Unwin (í Bretlandi) |
Útgáfudagur | 21. september 1937 |
Síður | 310 (fyrsta útgáfa) |
ISBN | ISBN 9789979583929 |
Framhald | Hringadróttinssaga |
Sagan kom fyrst út 21. september 1937 sem barnabók, en hún er eins konar inngangur að Hringadróttinssögu, sem Tolkien skrifaði síðar. Bókin kom fyrst út á íslensku árið 1978 í þýðingu feðganna Úlfs Ragnarssonar og Karls Ágústs Úlfssonar. Hún hefur einnig komið út í íslenskri þýðingu Þorsteins Thorarensen.