Halldór Friðgeir Sigurðsson
Halldór Friðgeir Sigurðsson (26. janúar 1880 – 17. nóvember 1960) var íslenskur skipstjóri.[1] Hann var einn af stofnendum Samvinnufélags Ísfirðinga og var lengst af skipstjóri á bátnum Vébirni. Hann kom að stofnun stýrimannafélagsins Bylgjunar árið 1921 og var kosinn varaformaður á fyrsta fundi þess og varð seinna formaður félagsins í nokkur ár. Halldór var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu árið 1945 fyrir framlag sitt til sjávarútvegsins.[2]
Halldór Friðgeir Sigurðsson | |
---|---|
Fæddur | 28. janúar 1880 Arnardalur, Skutulsfjörður, Ísland |
Dáinn | 17. nóvember 1960 (80 ára) Ísafjörður, Ísland |
Störf | Skipstjóri |
Maki | Svanfríður Albertsdóttir |
Börn | 11, þ.á.m. Jón Laxdal |
Heiður | Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu |
Fjölskylda
breytaHalldór fæddist í Arnardal við Skutulsfirði en foreldrar hans voru Sigurður Guðmundsson (1836 – 1899) og Jónína Barbara Sturludóttir (1840 – 1909). Hann var kvæntur Svanfríði Albertsdóttur og eignaðist með henni 11 börn, þar á meðal Jón Laxdal leikara.[3]
Heimildir
breyta- ↑ „Íslendingaþættir. Sjötugur: Halldór Sigurðsson, skipstjóri frá Ísafirði“. Tíminn. 01 1950. bls. 3. Sótt 04 2024.
- ↑ „7 Íslendingar og 1 Norðmaður sæmdir Fálkaorðunni“. Morgunblaðið. Nóvember 1945. bls. 5. Sótt Apríl 2024.
- ↑ Guðmundur Guðmundsson (Mars 1960). „80 ára - Halldór Sigurðsson, skipstjóri“. Sjómannablaðið Víkingur. Sótt Apríl 2024.