Giovanni Leone (3. nóvember 19089. nóvember 2001) var ítalskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra Ítalíu í tveimur skammlífum „sumarstjórnum“ á 7. áratugnum og forseti Ítalíu frá 1971 til 1978. Hann var frá Napólí og faðir hans var einn af stofnendum kristilega demókrataflokksins. Hann varð forsætisráðherra 1963 og 1968 í ríkisstjórnum sem höfðu það eina hlutverk að bera fram fjárlög næsta árs. 1976 var hann kosinn forseti en neyddist til að segja af sér í kjölfar Lockheed-hneykslisins sex árum síðar þar sem líklegt þótti að hann hefði þegið mútur til að taka Lockheed fram yfir keppinautana í kaupum á herflugvélum fyrir ítalska herinn. Þessar ásakanir voru þó aldrei sannaðar.

Giovanni Leone


Fyrirrennari:
Amintore Fanfani
Forsætisráðherra Ítalíu
(1963 – 1963)
Eftirmaður:
Aldo Moro
Fyrirrennari:
Aldo Moro
Forsætisráðherra Ítalíu
(1968 – 1968)
Eftirmaður:
Mariano Rumor
Fyrirrennari:
Giuseppe Saragat
Forseti Ítalíu
(1972 – 1978)
Eftirmaður:
Sandro Pertini