Gift
Gift er fjárfestingafélag sem var stofnað árið 2007 og var upphaflega í eigu Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga. Félagið er talið hafa fengið lán hjá Kaupþingi september 2008 sem var hugsað til þess eins að halda gengi Kaupþings uppi. [1] Árið 2011 gekk Gift í gegnum nauðasamninga hjá Arion banka og þá voru 57 milljarðar króna af skuldum Giftar afskrifaðir. [2]
Saga
breytaForsaga Fjárfestingarfélagsins Giftar er að finna í Samvinnutryggingum sem voru stofnaðar árið 1946 með stofnfé úr SÍS. Árið 1989 voru Samvinnutryggingar og Brunabótafélagið sameinuð og úr varð VÍS með um 50 þúsund félaga og rúmlega eitt þúsund fyrirtæki. Árið 2003 tóku Samvinnutryggingar svo þátt í kaupum á Búnaðarbankanum sem síðar varð Kaupþing og hagnaðist félagið mjög á kaupunum.
Haustið 2007 voru Samvinnutryggingar lagðar niður en eignir og skuldir yfirfærðar í fjárfestingarfélagið Gift sem hélt áfram að fjárfesta á markaði með eignir Samvinnutrygginga en að mestu í fyrirtækjum sem tengdust stjórnendum Giftar. Þar má nefna félög sem Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra, átti hlut í og félögum sem Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður Giftar og kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagafjarðar átti í.
Tengsl við Kaupþing
breytaÞórólfur og Finnur urðu eigendur að Kaupþingi við einkavæðingu Búnaðarbankans.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Gift skuldar 45 milljarða – Lán Kaupþings til Giftar tilraun til að halda gengi Kaupþings uppi?; grein af Eyjan.Presan.is 2009“. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. júní 2016. Sótt 28. janúar 2013.
- ↑ „Afskrifuðu rúma 57 milljarða hjá Gift; grein af Dv.is 2013“. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. apríl 2013. Sótt 29. janúar 2013.
Tenglar
breyta- „Áttu að slíta starfsemi Samvinnutrygginga fyrir löngu“; grein af Vísi.is 2009
- „Gift orðið einn stærsti fasteignaeigandinn úti á Granda“; grein af Dv.is 2011 Geymt 14 desember 2012 í Wayback Machine
- „Gift fær nauðasamninga í stað gjaldþrots“; grein af Eyjan.pressan.is 2011 Geymt 10 nóvember 2014 í Wayback Machine
- „Óhæfa í þagnargildi“; leiðari af Dv.is 2013 Geymt 30 janúar 2013 í Wayback Machine
- „Gift lánaði félagi Finns 840 milljónir“; grein af Dv.is 2013 Geymt 18 febrúar 2013 í Wayback Machine
- „Ólafur gat grætt á Giftarfélaginu“; grein af DV.is 2013 Geymt 22 febrúar 2013 í Wayback Machine