Garðaýr
Garðaýr (fræðiheiti: Taxus × media)[1] er blendingur af tegundunum Taxus baccata og Taxus cuspidata. Þessi blanda er talin hafa komið fyrst fram hjá Massachusetts-staðsetta garðyrkjumanninum T.D. Hatfield um 1900.[2]
Taxus × media | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Taxus × media Rehder |
Lýsing
breytaÚtlitseinkenni eru á milli foreldrategunda. Eins og flestar ýviðartegundir, kýs T. media helst vel framræstan og rakan jarðveg, en hefur nokkuð þurrkþol gæti í raun drepist ef jarðvegurinn er of blautur.[1] Hann er talinn harðgerari en T. baccata.
T. media vex fremur hægt og skaddast ekki af tíðum klippingum, sem gerir þennann blending heppilegan í limgerði erlendis, og í bonsai.[1]
Eitrun
breytaTaxus media hefur eins og foreldrarnir mikið af taxine í greinum, barri og fræi. Taxine er mjög eitrað hjörtum spendýra.[3]
Ræktunarafbrigði
breyta- Taxus media var. hicksii er algengt afbrigði þessa blendings og er það hávaxnasta og nettasta, verður aðeins 1,3 metrar að þvermáli þó hæðin verði að 6 metrum.[2][4]
- T. media densiformis afbrigðið getur náð 3 m í þvermál; hinsvegar nær hann ekki yfir 1,5 m á hæð.[2]
- T. media Hatfieldii er breiðpýramídalaga og reynst þolanlega á Íslandi. [5]
- T. media Hillii er allt að um 3 m hátt form, breiðkeilulaga í vextinum eða nálgast að vera kúlulaga.[6]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 The Ohio State University Plant Facts: Anglojap Yew
- ↑ 2,0 2,1 2,2 „University of Connecticut Horticulture: Taxus Media“. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. desember 2018. Sótt 15. apríl 2018.
- ↑ Wilson, C. R.; Sauer, J.; Hooser, S. B. (2001). „Taxines: A review of the mechanism and toxicity of yew (Taxus spp.) alkaloids“. Toxicon. 39 (2–3): 175–85. doi:10.1016/s0041-0101(00)00146-x. PMID 10978734.
- ↑ „University of Illinois - Selecting Shrubs for Your Home“. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. maí 2018. Sótt 15. apríl 2018.
- ↑ Tré og runnar eftir Ásgeir Svanbergsson 1989
- ↑ Lystigarður Akureyrar - Garðaýr
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Garðaýr.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Taxus × media.