Furðulegar uppljóstranir

bók um Sval og Val frá árinu 1987

Furðulegar uppljóstranir (franska: La jeunesse de Spirou) er 38. Svals og Vals-bókin og sú sjötta eftir félagana Tome og Janry. Bókin kom út á frummálinu og í íslenskri þýðingu árið 1987.

Söguþráður

breyta

Bókin skiptist upp í nokkrar stuttar sögur. Sú fyrsta er einungis átta síður og segir frá æskuárum Svals. Varð hún upphafið að sjálfstæðri ritröð um ævintýri Litla-Svals.

Fláráði falsarinn segir frá eltingaleik Svals og Vals við falsara sem býður til sölu fimmtu Viggó-bókina (en fimmta heftið kom aldrei út í franska bókaflokknum).

Einkaþjónn forsetans lýsir vandræðum Svals á Þorláksmessukvöldi þegar hann er tekinn í misgripum fyrir lyftuþjón og hefur svo hlutverkaskipti við Bandaríkjaforseta.

Hið óttalega burp segir frá tilraun Sveppagreifans sem breytir bæjarfyllibyttunni í Sveppaborg í herfilegt skrímsli. Inn í atburðarásina fléttast misheppnað póstrán.

Villandi ljósmynd segir frá samkomu vísindamanna á setri Sveppagreifans. Í hópnum leynast tveir svikahrappar en Svalur og Valur afhjúpa þá með aðstoð gamallar ljósmyndar.

Fróðleiksmolar

breyta
  • Yfirtitill bókarinnar er Einstæð og ótrúleg frásögn, meira og minna sönn, um æskuár Svals.
  • Í sögunni um æskuár Svals koma ýmsar aðrar persónur úr bókaflokknum við sögu, svo sem Valur, Bitla, Sammi frændi og Sveppagreifinn. Ekkert þeirra kemur þó við sögu í framhaldsbókunum um Litla Sval.
  • Í sögunni um fláráða falsarann bregður gælumáfi Viggós viðutan fyrir.
  • Fyrirmyndin að Bandaríkjaforsetanum í Einkaþjóni forsetans var Ronald Reagan.

Íslensk útgáfa

breyta

Bókin kom út í íslenskri þýðingu Bjarna Fr. Karlssonar á vegum Iðunnar árið 1987. Þetta var 24. bókin í íslensku ritröðinni.