Fred Buscaglione
Fred Buscaglione (23. nóvember 1921 – 3. febrúar 1960) var ítalskur tónlistarmaður og leikari á 6. áratugnum. Hann fæddist í Tórínó og hét upphaflega Ferdinando Buscaglione. Persónan sem hann túlkaði í lögum sínum var eins konar smáglæpamaður, kvennabósi og drykkjurútur, með vísunum í rómantíska ímynd bandarísk-ítölsku mafíunnar í Chicago og New York á bannárunum s.s. Al Capone.
Buscaglione hóf feril sinn í útvarpshljómsveit útvarps bandamanna þar sem hann var í fangabúðum á Sardiníu í Síðari heimsstyrjöld.
Hann náði miklum vinsældum á Ítalíu undir lok 6. áratugarins með lögum eins og „Che bambola“, „Eri piccola cosi“ og „Whisky facile“ þar sem textarnir voru eftir félaga hans, Leo Chiosso.
Buscaglione lést í bílslysi í Róm þegar Ford Thunderbird-bifreið sem hann ók lenti í árekstri við vörubíl árla morguns.