Frank Ocean
Christopher Francis Ocean (f. Christopher Edwin Breaux; 28. október 1987), betur þekktur undir sviðsnafni sínu Frank Ocean, er bandarískur söngvari og lagahöfundur frá New Orleans, Louisiana. Ocean byrjaði feril sinn á því að semja nafnlaust lög fyrir tónlistarmenn eins og Brandy Norwood, Justin Bieber og John Legend. Árið 2010 náðu lögin „Novacane“ og „Swim Good“ gríðalegum árangri og vöktu áhuga hjá tónlistarfólki eins og Kanye West, Beyoncé Knowles og Jay-Z og þar af leiðandi birtust lögin á plötunni Watch the Throne með West og Jay-Z.
Frank Ocean | |
---|---|
Fæddur | Christopher Edwin Breaux 28. október 1987 |
Störf |
|
Ár virkur | 2005–í dag |
Tónlistarferill | |
Uppruni | New Orleans, Louisiana, BNA |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi |
|
Áður meðlimur í | Odd Future |
Vefsíða | blonded |
Árið 2012 lenti Ocean í öðru sæti á BBC's Sound of 2012-listanum. Fyrsta platan hans Channel Orange sem hann gaf út í júlí 2012 á plötunni voru til dæmis lögin „Thinkin Bout You“, „Lost“ og „Sweet Life“.
Æskuár
breytaChristopher „Lonny“ Breaux fæddist 28. október 1987 í Kaliforníu. Þegar hann var um það bil fimm ára flutti hann til New Orleans, Louisiana. Þegar Frank var unglingur safnaði hann sér pening með því að slá gras, ganga með hunda og þrífa bíla fyrir þá sem vildu, til þess að hann gæti borgað fyrir tíma í stúdíóinu.
Einkalíf
breytaÁrið 2010 breytti hann nafninu sínu úr Christopher Breaux yfir í Christopher Francis Ocean í gegnum löglega vefsíðu. Ocean var einn af fyrstu afrískættuðu amerísku tónlistarmönnum til þess að viðurkenna samkynhneigð sína.[heimild vantar]