Tá
Tær eru útlimir á fæti manna og sumra dýra. Margar dýrategundir, svo sem kötturinn, ganga á tánum og flokkast því sem táfetar. Menn og önnur dýr sem ganga á iljum eru ilfetar, og dýr sem ganga á hófum eru naglfetar.
Sá staður á fætinum sem tærnar eru á er nefndur tárót eða tástaður.
Tærnar fimmBreyta
Tærnar hafa ekki eins föst heiti og fingurnir en stóratá er sú tá sem hefur flest heiti. Stundum eru tánum gefin sérstök nöfn eftir staðsetningu á landinu og er það sett í sviga með útskýringum um stað.
- Stóratá, langatá[1], þumaltá eða hin mesta táin (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Vigga; Eyjafirði: Dyrgja og Stóra-Jóa)[1]
- Önnur tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Háa-Þóra; Eyjafirði: Bauga og Nagla-Þóra)[1]
- Þriðja tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Stutta-Píka; Eyjafirði: Geira og Langa-Dóra)[1]
- Fjórða tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Litla-Gerður; Eyjafirði: Búdda og Stutta-Jóra)[1]
- Lítla tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Lilla; Eyjafirði: Grýta og Litla-Lóa)[1]
Tengt efniBreyta
TenglarBreyta
HeimildirBreyta
- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 1,5 http://www.lexis.hi.is/ordvikunnar/tiu_eru_a_ther.html Geymt 2004-12-16 í Wayback Machine Tíu eru á þér tær og fingur ...