Einar Ingibergur Erlendsson
íslenskur húsameistari
(Endurbeint frá Einar Erlendsson húsameistari)
Einar Ingibergur Erlendsson húsameistari fæddist 15. október árið 1883 í Reykjavík og lést 24. maí 1968. Hann er talinn einn af brautryðjendum í íslenskri byggingarlist þó hann hefði ekki formlega menntun sem arkitekt. Einar teiknaði m.a. Gömlu loftskeytastöðina við Suðurgötu, Kennaraskólann við Laufásveg og Fríkirkjuveg 11.