Drekasvæðið
Drekasvæðið er hafsvæði í Norður-Íshafi, við Jan Mayen-hrygginn, skammt frá Jan Mayen, Svæðið er innan landhelgi Íslands og gera íslensk stjórnvöld sér vonir um að þar megi finna jarðgas og olíu. Svæðið var boðið út til olíuleitar í janúar 2009.
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa unnið að jarðfræðilegum og jarðeðlisfræðilegum mælingum vegna undirbúningsvinnu fyrir olíuleitina. Í tengslum við þessa vinnu hafa allmörg ný örnefni orðið til, bæði á hafsvæðum og hafsbotni. Raunar á það einnig við um hafsvæði suður af landinu þar sem Íslendingar gera kröfur um nýtingarrétt.
Svæðin sem hér um ræðir eru, auk Drekasvæðis, í Ægisdjúpi (Síldarsmugunni) og á Bergrisanum (Hatton-Rockall). Nöfnin á svæðunum voru sótt til íslensku landvættanna sem sagt er frá í Ólafs sögu Tryggvasonar í Heimskringlu. Drekasvæðið er nefnt eftir drekanum sem fór ofan eftir dalnum í Vopnafirði og blés eitri. Bergrisinn var nefndur eftir risanum sem gekk fram á Vikarsskeiði með járnstaf í hendi.
Frægasti dreki íslenskra bókmennta er Fáfnir og því eru mörg örnefni á Drekasvæðinu sótt í Völsungasögu. Helstu hryggir á botninum heita t.d. Fáfnir, Otur, Sigurður, Gunnar, Gjúki, Sörli og Erpur. Síðan má nefna Fáfnisrennu, Sörlabotn og Gjúkakrók.
Sjá einnig
breytaTenglar
breyta- Erindi haldin á Ársfundi Orkustofnunar 2009 Geymt 9 mars 2016 í Wayback Machine (pdf)
- Stefnt að útboði sérleyfa til olíuleitar við Ísland í janúar 2009 - frétt iðnaðarráðuneytisins um útboð á olíuleit við Drekasvæðið auk margvíslegs ítarefnis
- Þjónustumiðstöð fyrir olíuleit á Drekasvæðinu - Staðarval og aðstöðusköpun[óvirkur tengill], september 2008 (pdf)
- Drekasvæðið kortlagt
- Fjárveitingar til að rannsaka Drekasvæðið
- Þjónustumiðstöð fyrir Drekasvæðið
- Stöðugt meiri athygli á Drekasvæðið til olíuvinnslu[óvirkur tengill]
- Leyniskýrslur um Drekasvæðið afhjúpaðar Geymt 3 desember 2008 í Wayback Machine
- Auknar líkur á olíu á Drekasvæðinu
- National Energy Authority Of Iceland: New Studies Underpin Oil Potential In The Dreki Area, Northeast Of Iceland
- Olían lekur upp úr Drekasvæðinu
- Olíuskattar Íslands draga úr áhuga á Drekaútboðinu