Djúpið (kvikmynd)
íslensk kvikmynd frá 2012
Djúpið er íslensk kvikmynd frá árinu 2012 í leikstjórn Baltasars Kormáks.[2] Handrit myndarinnar er lauslega byggt á samnefndu leikriti Jóns Atla Jónassonar sem innblásið var af þeim einstaka atburði þegar Guðlaugur Friðþórsson náði einn áhafnarmeðlima að bjarga lífi sínu eftir að Hellisey VE503 hvolfdi og sökk utan við Heimaey seint í mars 1984. Djúpið var forsýnd á kvikmyndahátíðinni í Torontó 7. september 2012 þar sem hún hlaut lofsamlega dóma gagnrýnenda.
Djúpið | |
---|---|
Leikstjóri | Baltasar Kormákur |
Höfundur | Jón Atli Jónasson Baltasar Kormákur |
Byggt á | Leikriti eftir Jón Atla Jónasson |
Framleiðandi | Baltasar Kormákur Agnes Johansen |
Leikarar | Ólafur Darri Ólafsson |
Kvikmyndagerð | Bergsteinn Björgúlfsson |
Klipping | Sverrir Kristjánsson Elísabet Ronaldsdóttir |
Tónlist | Ben Frost Daníel Bjarnason |
Fyrirtæki | Sögn ehf. |
Frumsýning | 7. september, 2012 (TIFF Bell Lightbox 2 Toronto) 21. september 2012 (Háskólabíó, Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó)[1] |
Lengd | 93 mín. |
Land | |
Tungumál | Íslenska |
Heimildir
breyta- ↑ https://www.kvikmyndavefurinn.is/films/nr/1462
- ↑ „Djúpið“. Kvikmyndavefurinn.