David James
David James (fæddur 1. ágúst 1970) er enskur fyrrverandi knattspyrnumaður. Hann lék sem markvörður en hefur nú lagt knattspyrnuskóna á hilluna. Hann spilaði með mörgum liðum m.a Liverpool , Aston Villa, West Ham og Portsmouth og ÍBV. Hann lék einnig 53 landsleiki fyrir enska karlalandsliðið í knattspyrnu. Hann er fimmti leikjahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. James starfar nú í fjölmiðlum sem álitsgjafi í knattspyrnu.
David James | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | David Benjamin James | |
Fæðingardagur | 1. ágúst 1970 | |
Fæðingarstaður | Welwyn Garden City, England | |
Hæð | 1,94 m | |
Leikstaða | Markvörður | |
Yngriflokkaferill | ||
1986–1988 | Watford | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
1988–1992 | Watford | () |
1992–1999 | Liverpool | () |
1999-2001 | Aston Villa | () |
2001-2004 | West Ham | () |
2004-2006 | Portsmouth | () |
2006-2010 | Bristol City | () |
2010-2012 | Bournemouth | () |
2013 | ÍBV | () |
2014 | Kerala Blasters | () |
Landsliðsferill | ||
1997–2010 | England | 53 (0) |
Þjálfaraferill | ||
2018 | Kerala Blasters | |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |