476
ár
(Endurbeint frá CDLXXVI)
Árið 476 (CDLXXVI í rómverskum tölum)
Árþúsund: | 1. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Atburðir
breyta- Ágúst - Zenon nær aftur völdum í Austrómverska ríkinu, eftir 20 mánaða útlegð. Basiliskos, sem rændi völdum af Zenon, er sendur í fangelsi í Kappadókíu þar sem hann deyr stuttu síðar úr sulti.
- 23. ágúst - Ódóvakar, germanskur hershöfðingi, er hylltur sem rex Italiae (konungur Ítalíu) af hermönnum sínum. Ódóvakar heldur völdum yfir Ítalíu til ársins 493.
- 4. september - Rómúlus Ágústus, síðasti keisari Vestrómverska ríkisins, er rekinn í útlegð af germanska hershöfðingjanum Ódóvakar. Þessi atburður er yfirleitt talinn marka endalok Rómaveldis í Vestur-Evrópu og upphaf miðalda.
- Vestgotar ráðast inn í Ítalíu gegn Ódóvakar en bíða ósigur. Zenon, keisari Austrómverska ríkisins, miðlar málum milli deiluaðila, og Ódóvakar skilar Vestgotum svæði í Gallíu sem hann hafði nýlega náð völdum yfir.
- Vetur - Zenon viðurkennir sjálfstæði konungsríkis Vandala sem nær yfir vesturhluta Norður-Afríku, Sardiníu, Korsíku, Baleareyjar og Sikiley. Stuttu síðar afhenda Vandalar Ódóvakar Sikiley gegn gjaldi.
Fædd
breytaDáin
breyta- Basiliskos, Austrómverskur keisari.
- Órestes, rómverskur stjórnmálamaður, faðir Romulusar Augustusar.