Borgarskógrækt
Borgarskógrækt er gróðursetning og umönnun á trjám í borgarlandi.
Á Íslandi
breytaRótgróin tré í görðum sem reynsla er af eru t.d. garðahlynur, ilmbjörk, silfurreynir, ilmreynir og álmur. Minni reynsla er af trjám í göturými og opnari svæðum innan borgarlands. Tré sem standa í hellulögðu eða malbikuðu umhverfi við götur eru við erfiðari aðstæður með takmarkað rótarrými. Alaskaösp hentar þar sem nægt rými er og öflugt rótarkerfi veldur ekki vandræðum. Aspir hafa verið fjarlægðar í Reykjavík þar sem þær henta illa. Barrtré henta misvel og eru sum hver viðkvæm fyrir umhleypingum við sjávarsíðuna. Tegundir eins og gráelri og ýmsar reynitegundir lofa góðu og tilraunir hafa verið gerðar með linditré. Trjátegundir eru misnæmar fyrir mengun og vindi og taka ætti tillit til þeirra þátta í borgarlandi.
Tré í þéttbýli hafa oft verið valin tré ársins hjá Skógræktinni. Að auki velur Skógræktarfélag Reykjavíkur borgartré árlega í samstarfi við Reykjavíkurborg. [1]
Tenglar
breytaTengill
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Borgartréð útnefnt á morgun[óvirkur tengill] Skogur.is skoðað 17. maí, 2018