Border collie
Border collie eða merkjakoli er afbrigði af hundi sem hefur verið ræktað sem fjárhundur og á uppruna sinn að rekja til Englands og Skotlands. Þeir eru af mörgum taldir meðal greindustu og duglegustu hunda.
Border collie | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Border collie | ||||||||||
Önnur nöfn | ||||||||||
Merkjakoli | ||||||||||
Tegund | ||||||||||
Fjárhundur | ||||||||||
Uppruni | ||||||||||
Bretland og Skotland | ||||||||||
Ræktunarmarkmið | ||||||||||
| ||||||||||
Notkun | ||||||||||
Brúkunarhundur | ||||||||||
Lífaldur | ||||||||||
12-14 ár | ||||||||||
Stærð | ||||||||||
Meðalstór (45-55 cm) (15-20 kg) | ||||||||||
Tegundin hentar | ||||||||||
Virkum, bændum | ||||||||||
Aðrar tegundir | ||||||||||
Listi yfir hundategundir |
Aldur og uppruni
breytaTegundin rekur ættir sínar til Stóra-Bretlands en aldur hans er ekki þekktur að vissu. Bændur í Chevíót- og Galloway ræktuðu hann til að kalla fram bestu smalahæfileika og greind sem völ var á á þeim tíma. Hann komst ekki á skrá hjá Breska hundaræktarsambandinu fyrr en 1976.
Mikil eftirspurn var eftir góðum, hreinræktuðum merkjakolum í Ástralíu og Nýja-Sjálandi en þar er mikil sauðfjárrækt stunduð og þurftu bændur góða smalahunda. Þetta átti einnig við Ísland en kolinn vildi blandast íslenskum heimilishundum og misstu einstaklingarnir þannig sérstöðu sína hvað smalagreind varðaði.
Útlit og bygging
breytaRakkar verða um 53 cm en tíkurnar minni. Þeir eru meðalstórir og léttbyggðir, búkurinn langur og spengilegur. Höfuðið er langdregið og eyrun standa að hluta. Algengasti litur Border Collie er svartur og hvítur, en þeir geta verið margskonar á litinn, svosem brúnir og hvítir, bláir og hvítir og yrjóttir (Merle). Þeir eru gjarnan blesóttir með hvítan kraga, sokka og síðóttir.
Sum ræktunarfélög gera engin skilyrði til litar og útlits heldur bara geðslags, smalaeiginleika og heilbrigði. Þannig á merkjakoli að vera heilbrigður og vakandi fram undir 10 ára aldur, jafnvel lengur.
Notkun
breytaMerkjakoli er mest notaður til að smala sauðfé og nýtist vel til þess arna vegna hraða og snerpu í hreyfingum. Hann sækist eftir því að halda fé í hóp og rekur það gjarnan í átt að húsbónda sínum. Hann hefur einnig sannað sig sem fíkniefnahundur, snjóflóðahundur, rekja spor (tracking) og aðstoðarhundur fyrir til dæmis fatlaða eða hreyfihamlaða.
Merkjakoli nýtist til ýmissa leikja, svo sem flyball, hlýðni og hindrunarkeppni (e. agility).