Fjallafura

Trjátegund í flokki barrtrjáa
(Endurbeint frá Bergfura)

Fjallafura (fræðiheiti Pinus mugo) er furutegund sem vex í hátt til fjalla í Evrópu og finnst í Pýreneafjöllum, Ölpunum, Erzgebirge, Karpatafjöllum, norður Apennínafjöllum og fjöllum á Balkanskaga í 1000 m til 2200 m hæð en sums staðar í 200 m hæð í Þýskalandi og Póllandi og upp í allt að 2700 m í suðurhluta Búlgaríu og í Pýrenaafjöllum.

Fjallafura
Fjallafura, P. mugo ssp. mugo
Fjallafura, P. mugo ssp. mugo
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Berfrævingar (Pinophyta)
Flokkur: Barrtré (Pinopsida)
Ættbálkur: Pinales
Ætt: Þallarætt (Pinaceae)
Ættkvísl: Furur (Pinus)
Undirættkvísl: Pinus
sect. Pinus
subsection Pinus
Tegund:
P. mugo

Tvínefni
Pinus mugo
Turra

Það eru tvær undirtegundir:

  • Fjallafura, Pinus mugo subsp. mugo, sem er 3 - 6 m hár margstofna runni.
  • Bergfura, Pinus mugo subsp. uncinata eða Pinus uncinata, er stærri og venjulega með einum stofni og verður allt að 20 m. hátt tré. Hliðargreinar eru miklar og sverar og leita upp á við með aðalstofninum.

Fjallafura/bergfura er mjög vindþolin, ljóselsk og hægvaxta[1]. Bergfura er mikið notuð í görðum, sérstaklega lágvaxna afbrigðið subsp. mugo.

Hún myndar blendinginn P. × rhaetica með skógarfuru þar sem þær vaxa saman. P. mugo er talið til ágengrar tegundar á hálendi Nýja Sjálands.

Á Íslandi

breyta

Bergfura/fjallafura hefur verið ræktuð á Íslandi síðan í kringum 1900. En á árunum 1899-1913 var hún gróðursett í reiti á Þingvöllum og á Grund í Eyjafirði [2]. Bergfura verður allt að 10-15 metra há hérlendis.[3] Hún vex víða um land, kelur sjaldan en getur verið viðkvæm fyrir sveppasjúkdómnum (furubikar). [4]

Svipmyndir

breyta

Tenglar

breyta
  • Fjallafura; grein í Morgunblaðinu 1980
  • „Hvernig þekkir maður í sundur stafafuru og bergfuru?“. Vísindavefurinn.

Tilvísanir

breyta
  1. Furutegundir Geymt 29 apríl 2016 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 4. febrúar, 2016.
  2. Bergfura[óvirkur tengill] Skógargátt, Skoðað 5. des. 2017.
  3. Skógræktin. „Bergfura“. Skógræktin. Sótt 9. maí 2020.
  4. Furutegundir Geymt 29 apríl 2016 í Wayback Machine Skógræktin. Skoðað 5. des. 2017.