Austurstræti
Austurstræti er gata í miðbæ Reykjavíkur sem nær frá Veltusundi austur að Lækjargötu. Í framhaldi af henni er Bankastræti og ofar Laugavegur.
Nöfn Austurstrætis
breytaAusturstræti hét í fyrstu Tværgaden og seinna Langafortov eða Langastétt. Gatan var svo nefnd vegna þess að steinaröð var lögð eftir henni að sunnanverðu til þess að ganga á þegar ekki varð komist yfir hana fyrir forarbleytu.
Staðir
breytaHús sem eru eða voru staðsett við Austurstræti
breyta- Búnaðarbankahúsið
- Landsbankahúsið
- Stólpahúsið
- Syndikatið (Austurstræti 14), brann 1915
Fyrirtæki sem eru eða voru staðsett við Austurstræti
breyta- Hressingarskálinn
- Karnabær - ekki lengur til.
- Landsbanki Íslands
- McDonald's - ekki lengur við Austurstræti.
- Þjóðminjasafn Íslands - ekki lengur við Austurstræti.
Austurstræti í dægurmenningu
breyta- Skemmtikrafturinn Laddi söng um Austurstræti í samnefndu, vinsælu dægurlagi. Upphafslínur þess eru: Ég niður' í Austurstræti snarast létt á strigaskónum, með bros á vör og tyggígúmmí í munninum.
- Dægurlagið Fröken Reykjavík eftir Jónas og Jón Múla Árnason hefst á spurningunni: Hver gengur þarna eftir Austurstræti og ilmar eins og vorsins blóm með djarfan svip og ögn af yfirlæti á ótrúlega rauðum skóm?
- Skáldið Tómas Guðmundsson orti kvæðið Austurstræti. Þar koma fyrir línurnar: Og þúsund hjörtu grípur gömul kæti. / Og gömul hjörtu þrá á ný og sakna. / Ó, bernsku vorrar athvarf, Austurstræti, / hve endurminningarnar hjá þér vakna.