Arnór Guðjohnsen
Íslenskur fyrrum knattspyrnumaður
Arnór Guðjohnsen (fæddur 30. apríl 1961) er íslenskur fyrrum knattspyrnumaður. Hann hóf feril sinn hjá Víkingi og spilaði með ýmsum liðum á Íslandi og í Evrópu. Hann varð markahrókur belgísku deildarinnar með R.S.C. Anderlecht tímabilið 1986-87. Arnór er faðir Eiðs Smára Guðjohnsen og Arnórs sem spilar með FH. Hann spilaði 73 leiki fyrir íslenska landsliðið og skoraði 14 mörk. Blað var brotið í knattspyrnusögunni þegar Eiður kom inn á fyrir hann í leik gegn Eistlandi en það var í fyrsta skipti sem feðgar áttu skiptingu í alþjóðaleik.
Arnór Guðjohnsen | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Arnór Guðjohnsen | |
Fæðingardagur | 30. júlí 1961 | |
Fæðingarstaður | Reykjavík, Ísland | |
Hæð | 1,78m | |
Leikstaða | Framherji | |
Yngriflokkaferill | ||
Víkingur | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
1978 | Víkingur | 12 (7) |
1978-1983 | SK Lokeren | 138 (26) |
1983-1990 | RSC Anderlecht | 139 (40) |
1990-1992 | FC Bordeaux | 52(8) |
1993 | BK Häcken | 24 (4) |
1994-1998 | Örebro SK | 100 (24) |
1998-2000 | Valur | 41 (22) |
2001 | Stjarnan | 18 (5) |
Landsliðsferill | ||
1978 1978 1979-1997 |
Ísland U19 Ísland U21 Ísland |
2 (0) 1 (0) 73 (14) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |