Anthony Albanese
Anthony Norman Albanese (f. 2. mars 1963) er ástralskur stjórnmálamaður og núverandi forsætisráðherra Ástralíu. Hann hefur verið leiðtogi ástralska Verkamannaflokksins frá 30. maí árið 2019 og tók við embætti forsætisráðherra þann 23. maí 2022 eftir sigur Verkamannaflokksins í þingkosningum sama mánuð.
Anthony Albanese | |
---|---|
Forsætisráðherra Ástralíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 23. maí 2022 | |
Þjóðhöfðingi | Elísabet 2. Karl 3. |
Landstjóri | David Hurley Sam Mostyn |
Forveri | Scott Morrison |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 2. mars 1963 Sydney, Nýja-Suður-Wales, Ástralíu |
Stjórnmálaflokkur | Verkamannaflokkurinn |
Maki | Carmel Tebbutt (g. 2000; sk. 2019) |
Börn | 3 |
Háskóli | Háskólinn í Sydney |
Æviágrip
breytaAlbanese fæddist 2. mars árið 1963 í Darlinghurst-hverfinu í Sydney. Móðir hans var af írskum ættum en faðir hans ítalskur. Hann gekk í skólann St Mary's Cathedral og síðan í Háskólann í Sydney, þar sem hann nam hagfræði. Hann gekk í Verkamannaflokkinn á námsárunum og vann síðan fyrir flokkinn sem rannsóknarfulltrúi.
Stjórnmálaferill
breytaEftir útskrift úr hagfræðinámi var Albanese kjörinn á ástralska þingið fyrir Grayndler-kjördæmi í Nýja-Suður-Wales í kosningum þann 2. mars 1996. Hann hlaut sæti í ríkisstjórn í fyrsta sinn þann 3. desember 2007 þegar hann varð héraðsþróunar- og byggðamálaráðherra í ríkisstjórn Kevins Rudd eftir kosningasigur Verkamannaflokksins. Julia Gillard hélt honum í ráðuneytinu þegar hún varð forsætisráðherra í júní 2010.
Anthony Albanese bauð sig fram til embættis varaleiðtoga Verkamannaflokksins þann 26. jnú 2013. Hann hlaut 61 atkvæði og sigraði fyrrum flokksleiðtogann Simon Crean, sem hlaut 38 atkvæði. Rudd, sem sneri aftur á forsætisráðherrastól stuttu síðar, gerði Albanese að varaforsætisráðherra í stjórn sinni.
Eftir að Verkamannaflokkurinn galt afhroð í þingkosningum þann 7. september 2013 bauð Albanese sig fram til leiðtoga flokksins. Hann hlaut 59,9 % atkvæða almennra flokksmeðlima í leiðtogakjörinu á móti Bill Shorten en aðeins 36,1 % atkvæða þingmanna flokksins og því var vegið meðaltal 48 %. Bill Shorten varð því nýr flokksleiðtogi en Albanese varð skuggaráðherra ferðamannamála. Eftir ósigur Verkamannaflokksins í þingkosningum ársins 2016 varð Albanese skuggaráðherra innviða- og samgöngumála.
Leiðtogi Verkamannaflokksins
breytaEftir að Verkamannaflokkurinn bað annan ósigur í þingkosningum árið 2019 sagði Bill Shorten af sér sem flokksleiðtogi og Albanese var kjörinn nýr leiðtogi án mótframboðs þann 30. maí.[1]
Gróðureldarnir í Ástralíu 2019-2020 og kórónuveirufaraldurinn höfðu mjög neikvæð áhrif á vinsældir forsætisráðherrans Scotts Morrison úr Frjálslynda flokknum[2][3] en Albanese tókst engu að síður ekki í fyrstu að auka fylgi Verkamannaflokksins.[4] Þess vegna fóru margir stjórnmálaskýrendur að spá því að Albanese myndi víkja úr embætti flokksleiðtoga í byrjun árs 2021.[5] Fylgi Morrisons og Frjálslynda flokksins hélt hins vegar áfram að dragast saman árið 2021 og voru Albanese og Verkamenn komnir með forystu í skoðanakönnunum undir lok ársins.[6]
Forsætisráðherra
breytaÍ maí árið 2022 unnu Verkamenn sigur í þingkosningum Ástralíu og bundu þannig enda á níu ára stjórn Frjálslynda flokksins.[7] Albanese tók því við af Morrison sem forsætisráðherra Ástralíu. Eftir að ljóst var að Verkamannaflokkurinn hefði unnið kosningarnar lýsti Albanese því yfir að hann hygðist leggja aukna áherslu á loftslagsmál eftir „glataðan áratug“ undir stjórn íhaldsmanna.[8]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Australie: l'aile gauche à la tête du Parti travailliste après le fiasco électoral“ (franska). Le Figaro. 27. maí 2019. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ „Scott Morrison suffers blow to personal approval rating in first poll of 2020“ (enska). The Guardian. 12. janúar 2020. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ „Australia PM's ratings hit 18-month low as lockdowns linger“ (enska). Reuters. 9. ágúst 2021. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ „Newspoll: Anthony Albanese in trouble as Labor fails to recapture lost legions“ (enska). The Australian. 12. október 2020. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ „How safe is Anthony Albanese and how long does he have as leader?“ (enska). The Sydney Morning Herald. 24. janúar 2021. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ „Voters throw support behind Anthony Albanese in latest Newspoll“. news.com.au (enska). 5. desember 2021. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ „VIDEO: Labor Leader Anthony Albanese greeted by locals before casting his vote at Marrickville Town Hall“ (enska). ABC news australia. Sótt 22. maí 2022.
- ↑ Árni Sæberg (22. maí 2022). „Sker upp herör í loftslagsmálum eftir „glataðan áratug" í Ástralíu“. Vísir. Sótt 22. maí 2022.
Fyrirrennari: Scott Morrison |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |